Mestur tími Samkeppniseftirlitsins fer í samgöngur og ferðamál Kristinn Ingi Jónsson skrifar 20. desember 2017 08:30 Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. vísir/anton brink
Samkeppniseftirlitið varði í fyrra hátt í 35 prósentum af ráðstöfunartíma sínum í málefni sem tengjast samgöngu- og ferðamörkuðum. Engir aðrir markaðir hlutu eins mikla athygli starfsfólks eftirlitsins. Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu Samkeppniseftirlitsins til Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD. Starfsmenn eftirlitsins, sem voru 24 talsins í lok síðasta árs, vörðu um 25 prósentum af tíma sínum í að skoða málefni sem tengjast umræddu mörkuðunum tveimur árin 2014 og 2015 en hlutfallið hækkaði hins vegar í tæplega 35 prósent í fyrra. Þá fóru hátt í 20 prósent af tíma starfsfólksins á síðasta ári í mál sem varða matvörumarkaðinn, en það er svipað hlutfall og undanfarin ár. Þegar kemur að málefnum sem tengjast fjármálaþjónustu nam hlutfallið tæplega 10 prósentum. Aðrir markaðir, svo sem olíu- og fjarskiptamarkaðirnir, fengu minni athygli. Í skýrslunni er auk þess bent á að starfsfólk Samkeppniseftirlitsins verji stórum hluta vinnutímans, eða ríflega 25 prósentum, í að skoða mál sem tengjast misnotkun á markaðsráðandi stöðu fyrirtækja. Ástæðan sé fyrst og fremst smæð hagkerfisins og að fákeppni ríki á mörgum mörkuðum. Mestur tími fer þó í athuganir á ólögmætu samráði. Málum sem koma til kasta Samkeppniseftirlitsins hefur fækkað verulega á síðustu árum. Í nóvembermánuði voru aðeins 59 mál á borði eftirlitsins en þau voru 129 talsins í byrjun árs 2016, að því er fram kemur í skýrslunni.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál.
Mest lesið Fríar skólamáltíðir séu skammgóður vermir Viðskipti innlent Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Viðskipti innlent Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Viðskipti innlent Verulega minni verðbólga Viðskipti innlent Frá RÚV til Coca-Cola Viðskipti innlent Salzburg úr sögunni hjá Play Viðskipti innlent Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu Atvinnulíf Mun leiða ferskvatnseldi hjá First Water Viðskipti innlent Ellefu milljarða lán til að byggja upp veitukerfi og verjast loftslagsvá Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ellefu milljarða lán til að byggja upp veitukerfi og verjast loftslagsvá Salzburg úr sögunni hjá Play Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Fríar skólamáltíðir séu skammgóður vermir Frá RÚV til Coca-Cola Verulega minni verðbólga Mun leiða ferskvatnseldi hjá First Water Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Spá enn einum fundinum án breytingar Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Munu fljúga til Nashville næsta sumar Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Átta sagt upp hjá Arion banka Bein útsending: Ársfundur Orkustofununar á Akureyri Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Fjármálaeftirlitið samþykkir samruna Landsbankans og TM Verður framkvæmdastjóri á hugbúnaðarsviði Origo Geta veitt fyrirtækjum hagstæðari lán Telur vaxtahækkanir viðskiptabankanna brattar Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi – Snjöll framtíð Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið Hrönn, Viktor og Þórdís til Varðar Ísak Einar til Samtaka atvinnulífsins Andri aðstoðarframkvæmdastjóri Júní Sjá meira