Innlent

Fundu myglu á þremur hæðum í flugturninum

Haraldur Guðmundsson skrifar
Viðgerðir standa yfir í flugturninum við Reykjavíkurflugvöll, en þeim lýkur í haust. Um ár er síðan turninn var rýmdur vegna myglu.
Viðgerðir standa yfir í flugturninum við Reykjavíkurflugvöll, en þeim lýkur í haust. Um ár er síðan turninn var rýmdur vegna myglu. Vísir/Eyþór
Myglusveppur fannst á þremur af átta hæðum flugturnsins við Reykjavíkurflugvöll og hefur ríkisfyrirtækið Isavia þegar varið rúmum 30 milljónum króna í viðgerðir. Efstu tvær hæðir turnsins eru myglu- og rakalausar og hefur flugumferðarstjórn fyrir flugvöllinn verið sinnt þar síðan myglan uppgötvaðist í apríl í fyrra.

Samkvæmt skriflegu svari Isavia við fyrirspurn Fréttablaðsins standa viðgerðir enn yfir. Þeim á að ljúka í haust eða rúmu ári eftir að turninn var rýmdur. Um 50 starfsmenn fyrirtækisins þurftu þá að flytja skrifstofur sínar í viðbyggingu við flugstjórnarmiðstöð Isavia við Reykjavíkurflugvöll eða í húsnæði dótturfélagsins Tern Systems í Hlíða­smára í Kópavogi.

„Heilsa og öryggi starfsfólks er forgangsmál og þegar komnar voru niðurstöður úr sýnatöku sem sýndu að rakaskemmdir og mygla væru í húsinu var starfsfólki á skrifstofum strax fundinn nýr staður. Framkvæmdasvæðið var afmarkað svo framkvæmdir hefðu sem allra minnst áhrif á loftgæði í þeim hlutum húsnæðisins sem ósýktir voru,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia.

Starfsfólk skrifstofu forstjóra Isavia, mannauðssviðs, hluta fjármálasviðs og deild þróunar- og stjórnunar höfðu skrifstofur í turninum. Þegar myglan var staðfest í apríl 2016 voru allir starfsmenn fyrirtækisins sendir í skoðun hjá hjúkrunarfræðingi. Ríkiskaup óskuðu í kjölfarið eftir þátttakendum í útboði á viðgerð á turninum.

„Hreinsun og viðgerðir eru framkvæmdar undir eftirliti sérfræðinga, sem veita ráðgjöf um hvernig unnt verður að gera loftgæðin í skrifstofurýmum sem best. Meðal annars verður sett upp nýtt loftræstikerfi í byggingunni en það hefur einnig verið ráðist í niðurrif og hreinsun sem er lokið núna. Svo er uppsetning á kerfinu næst á dagskrá og að setja upp kerfisloft og nýtt byggingarefni fyrir það sem skipta þurfti út og var sýkt,“ segir Guðni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×