Hugveita sendir áróður gegn loftslagsvísindum til vísindakennara Kjartan Kjartansson skrifar 30. mars 2017 23:00
Frjálshyggjuhugveitan Heartland Institute hefur sent 25.000 vísindakennurum í Bandaríkjunum bók þar sem viðurkenndum loftslagsvísindum er hafnað. Ætlun hennar er að senda vísindakennurum í öllum opinberum skólum í Bandaríkjunum bókina. Bókin nefnist „Af hverju vísindamenn greinir á um hnattræna hlýnun“ og er skrifuð af þekktum afneiturum loftslagsvísinda. Með bókinni fylgir mynddiskur og bréf frá Heartland Institute. Í því biður hugveitan kennarana um að „íhuga möguleikann“ að samhljómur ríki ekki á meðal vísindamanna um orsakir loftslagsbreytinga á jörðinni. Leggur hugveitan til að kennararnir kenni nemendum sínum að líflegar rökræður eigi sér nú stað á milli vísindamanna um málefnið. „Þetta eru ekki vísindi en það er sett í vísindabúning. Þessu er greinilega ætlað að rugla kennara í ríminu,“ segir Ann Reid, framkvæmdastjóri samtakanna National Center for Science Education við PBS í Bandaríkjunum. Þannig virðist forsíðu bókarinnar ætlað að blekkja kennarana. Undirtitill hennar er til að mynda „Skýrsla NIPCC um samhljóða álit vísindanna“. Skammstöfun loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna sem gefur út raunverulegar samantektarskýrslur um niðurstöður loftslagsvísindamanna er IPCC. NIPCC sem er getið á forsíðu bókar Heartland Institute stendur aðeins fyrir „Not the IPCC“. Heartland Institute ætlar í heildina að senda 200.000 vísindakennurum í Bandaríkjunum bókina. Þá verður hún komin i alla opinbera skóla landsins.
Mest lesið Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Mættur í Samfylkinguna Innlent Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Innlent Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Innlent Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Erlent Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Innlent Hlaut varanlegan skaða vegna myglu en fær ekki krónu Innlent Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Innlent Fleiri fréttir Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Alríkisákærur gefnar út á hendur borgarstjóra New York Hótar að beita kjarnorkuvopnum gegn árás með hefðbundnum vopnum Vinna að þriggja vikna vopnahléi á milli Ísrael og Hezbollah Selenskí varar við „kjarnorku hörmung“ Loftárásum ætlað að undirbúa mögulega innrás „Virkið“ Vuhledar að falli komið Skutu skotflaug í Kyrrhafið í fyrsta sinn í rúm fjörutíu ár Manngerð hlýnun gerði flóðin í Evrópu tvöfalt líklegri en ella Unnu spellvirki á finnska þinghúsinu til að mótmæla móvinnslu Hútar vilja háþróaðar stýriflaugar frá Rússum Sjá meira