De Gea næst bestur á eftir Schmeichel: „Hann er eins og karakter úr The Matrix“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. desember 2017 12:00 David De Gea. vísir/getty
David De Gea, markvörður Manchester United, fór hamförum á Emirates-vellinum á laugardaginn þegar að United vann mikilvægan 3-1 sigur á Arsenal og hélt sér á lífi í titilbaráttunni gegn Manchester City. Spænski markvörðurinn varði fjórtán skot, þar af nokkur með miklum tilþrifum, en hann var gjörsamlega magnaður í leiknum. De Gea hefur undanfarin ár verið besti markvörður deildarinnar og virðist bara verða betri. „Ég verð að viðurkenna að ég hafði rangt fyrir mér þegar að hann kom í úrvalsdeildina. Ég man bara eftir þessum granna 20 ára gamla strák sem leit út fyrir að vera í of stórum búning. Ég trúði ekki að hann væri nógu sterkur fyrir úrvalsdeildina,“ segir Jamie Redknapp, fyrrverandi landsliðsmaður Englands. „Hann hefur síðan þá látið alla sérfræðinga éta orð sín. Ég held ég hafi aldrei séð neinn betri á milli stanganna en David De Gea. Hann er eins og karakter úr The Matrix. Það er eins og hann hægi á boltanum áður en hann ver skotin.“ Aðspurður hvar De Gea standi nú á meðal þeirra bestu í sögu ensku úrvalsdeildarinnar segir Redknapp hann vera í öðru sæti. „Hann er næst bestur á eftir Peter Schmeichel. Schmeichel var svakalegur. Skipti eftir skipti komust menn einir á móti honum og áttu kannski gott skot og héldu að þeir væru að fara að skora en þá varði hann á ótrúlegan hátt,“ segir Jamie Redknapp.
Enski boltinn Tengdar fréttir Mourinho: De Gea bestur í heimi David de Gea var maður leiksins þegar Manchester United vann Arsenal 1-3 á Emirates í gær, en Arsenal átti 33 skot í leiknum. 3. desember 2017 08:00 Spánverjinn var með alla anga úti á Emirates David de Gea átti stórleik þegar Manchester United vann 1-3 sigur á Arsenal á laugardaginn. Spænski markvörðurinn jafnaði met og sýndi hvers hann er megnugur. 4. desember 2017 08:30 Sjáðu mark Gylfa, ótrúleg tilþrif De Gea og mörkin fimm hjá Liverpool Það var stór dagur í ensku úrvalsdeildinni í gær. 3. desember 2017 10:30 Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira
Mourinho: De Gea bestur í heimi David de Gea var maður leiksins þegar Manchester United vann Arsenal 1-3 á Emirates í gær, en Arsenal átti 33 skot í leiknum. 3. desember 2017 08:00
Spánverjinn var með alla anga úti á Emirates David de Gea átti stórleik þegar Manchester United vann 1-3 sigur á Arsenal á laugardaginn. Spænski markvörðurinn jafnaði met og sýndi hvers hann er megnugur. 4. desember 2017 08:30
Sjáðu mark Gylfa, ótrúleg tilþrif De Gea og mörkin fimm hjá Liverpool Það var stór dagur í ensku úrvalsdeildinni í gær. 3. desember 2017 10:30