Innlent

Gámur féll af flutningabíl á Drottningarbraut

Kjartan Kjartansson skrifar
Gámurinn var tómur og var fljótlega fjarlægður.
Gámurinn var tómur og var fljótlega fjarlægður. Vísir
Tómur ruslagámur féll af flutningabíl á Drottningarbraut við Leiruveg nú í kvöld. Að sögn lögreglu hafði gámurinn líklega ekki verið nægilege vel festur. Óhappið hafði hins vegar lítil áhrif á umferð.

Óhappið átti sér stað á milli kl. 19 og 20 í kvöld. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Akureyri lenti gámurinn á umferðareyju.

Annar flutningabíll með krana var svo fenginn til þess að fjarlæga gáminn af götunni en án teljandi tafa á umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×