Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni

Lögregluyfirvöld búa ekki yfir upplýsingum um að hér á landi séu hryðjuverk í undirbúningi. Þó má búast við hertum aðgerðum lögreglu vegna fjölmennra viðburða í Reykjavík í sumar. Nánar verður fjallað um þetta í fréttum Stöðvar tvö klukkan 18:30.

Við kíkjum líka í Raufarhólshelli, en minningarskjöldur sem fannst þar nýlega styður frásögn um að ösku síðasta frumbyggjans af syðsta ættbálki jarðar hafi verið komið fyrir í hellinum fyrir um þrjátíu árum.

Loks verðum við í beinni útsendingu frá Norðurá í Borgarfirði, enda er laxveiðisumarið formlega hafið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×