Skyttunum brást ekki bogalistin á vítapunktinum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. ágúst 2017 15:15 Olivier Giroud fagnar eftir að hafa skorað úr síðustu vítaspyrnu Arsenal. vísir/getty Arsenal vann Samfélagsskjöldinn 2017 eftir sigur á Chelsea í vítaspyrnukeppni, 4-1. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 1-1. Þetta er í fimmtánda sinn sem Arsenal vinnur Samfélagsskjöldinn. Þessi sömu lið mættust í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar í vor. Þá vann Arsenal 2-1 sigur. Arsenal byrjaði leikinn í dag betur og Alexandre Lacazette var nálægt því að koma Skyttunum yfir þegar hann skaut í stöngina á 23. mínútu. Chelsea komst betur inn í leikinn eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn en tókst ekki að skora, ekki frekar en Arsenal. Strax í upphafi seinni hálfleiks kom Victor Moses, sem var rekinn út af í bikarúrslitaleiknum í vor, Chelsea yfir með skoti úr teignum eftir skallasendingu frá Gary Cahill. Á 80. mínútu rak Robert Madley Pedro af velli fyrir ljótt brot á Mohamed Elneny. Granit Xhaka tók aukaspyrnuna og sendi inn á teiginn á varamanninn Sead Kolasinac sem skallaði boltann framhjá Thibaut Courtois í marki Chelsea. Fleiri urðu mörkin í venjulegum leiktíma ekki og því var farið í vítaspyrnukeppni sem var með svokölluðu ABBA-sniði. Nýtt fyrirkomulag truflaði leikmenn Arsenal ekki neitt. Þeir skoruðu úr öllum sínum spyrnum en Chelsea aðeins úr einni. Courtois þrumaði yfir og Álvaro Morata skaut í stöngina. Arsenal mætir Leicester City í upphafsleik ensku úrvalsdeildarinnar á föstudaginn á meðan Chelsea mætir Burnley daginn eftir.
Arsenal vann Samfélagsskjöldinn 2017 eftir sigur á Chelsea í vítaspyrnukeppni, 4-1. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 1-1. Þetta er í fimmtánda sinn sem Arsenal vinnur Samfélagsskjöldinn. Þessi sömu lið mættust í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar í vor. Þá vann Arsenal 2-1 sigur. Arsenal byrjaði leikinn í dag betur og Alexandre Lacazette var nálægt því að koma Skyttunum yfir þegar hann skaut í stöngina á 23. mínútu. Chelsea komst betur inn í leikinn eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn en tókst ekki að skora, ekki frekar en Arsenal. Strax í upphafi seinni hálfleiks kom Victor Moses, sem var rekinn út af í bikarúrslitaleiknum í vor, Chelsea yfir með skoti úr teignum eftir skallasendingu frá Gary Cahill. Á 80. mínútu rak Robert Madley Pedro af velli fyrir ljótt brot á Mohamed Elneny. Granit Xhaka tók aukaspyrnuna og sendi inn á teiginn á varamanninn Sead Kolasinac sem skallaði boltann framhjá Thibaut Courtois í marki Chelsea. Fleiri urðu mörkin í venjulegum leiktíma ekki og því var farið í vítaspyrnukeppni sem var með svokölluðu ABBA-sniði. Nýtt fyrirkomulag truflaði leikmenn Arsenal ekki neitt. Þeir skoruðu úr öllum sínum spyrnum en Chelsea aðeins úr einni. Courtois þrumaði yfir og Álvaro Morata skaut í stöngina. Arsenal mætir Leicester City í upphafsleik ensku úrvalsdeildarinnar á föstudaginn á meðan Chelsea mætir Burnley daginn eftir.
Enski boltinn Mest lesið Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó Íslenski boltinn Sjáðu fyrstu mörk Orra Steins í treyju Real Sociedad Fótbolti Valsmenn neituðu að veita viðtöl Körfubolti Lélegasta lið sögunnar: „Augljóslega er þetta ömurlegt“ Sport „Ábyrgðin er mín“ Fótbolti Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Fótbolti Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Enski boltinn Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Enski boltinn Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Fótbolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu deild karla og málin gerð upp í Bestu mörkunum Sport Fleiri fréttir Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Stuðningsmaður safnað milljónum eftir að völlur félagsins skemmdist Markvarslan Alisson í blóð borin Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Sjá meira