Dele Alli: Betri en Lampard, Gerrard og Beckham til samans Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. apríl 2017 10:15 Dele Alli og þeir Frank Lampard, Steven Gerrard og David Beckham á svipuðum aldri. Vísir/Samsett/Getty
Dele Alli skoraði eitt marka Tottenham í 4-0 sigri á Watford í ensku úrvalsdeildinni um helgina og hefur þar með átt þátt í fjórtán mörkum á árinu 2017 og 22 mörkum á öllu tímabilinu. Dele Alli heldur upp á 21. árs afmælið sitt á morgun og því var upplagt að skoða hvaða aðrir þekktir enskir landsliðsleikmenn í svipaðri stöðu höfðu gert fyrir 21 árs afmælisdaginn sinn. Dele Alli hefur alls átt þátt í 41 marki í ensku úrvalsdeildinni á ferlinum en hann hefur skorað 26 mörk og lagt upp önnur fimmtán. Þetta þýðir að strákurinn hefur átt þátt í fleiri mörkum fyrir 21 árs afmælið en þeir Frank Lampard (15), Steven Gerrard (13) og David Beckham (12) náðu samanlagt á sama aldri. Allir áttu þessir þrír frábæran feril, bæði í ensku úrvalsdeildinni sem og með enska landsliðinu. Framgana Alli lofar því góðu fyrir framhaldið. Dele Alli skoraði tíu deildarmörk á sínu fyrsta tímabili í fyrra og er nú kominn með sextán mörk. Enginn annar leikmaður undir 21 árs í fimm bestu deildum Evrópu hefur skoraði svo mörg mörk á tímabilinu. Árið 2017 hefur reyndar verið ein stór sýning hjá Dele Alli. Hann skoraði tvennu í fyrstu tveimur leikjum Tottenham á nýju ári eftir að hafa endað gamla árið með þremur mörkum í síðustu tveimur leikjunum. Í síðustu fimmtán deildarleikjum hefur Dele Alli átt alls þátt í sextán mörkum (12 mörk og 4 stoðsendingar). Það er hægt að sjá markið hans Dele Alli sem og öll mörk Tottenham í myndbandinu hér fyrir neðan.40 - Dele Alli (40) has had a hand in as many PL goals before turning 21 as Lampard (15), Gerrard (13) & Beckham (12) combined. Star. pic.twitter.com/fWzi2Crd2Y— OptaJoe (@OptaJoe) April 8, 2017
Enski boltinn Mest lesið Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira