Kallar eftir algeru banni á kjarnorkuvopnum Samúel Karl Ólason skrifar 18. janúar 2017 19:23
Xi Jinping, forseti Kína, vill að kjarnorkuvopn verði alfarið bönnuð og þeim vopnum sem þegar eru til verði eytt. Þetta sagði hann í ræðu hjá Sameinuðu þjóðunum í Genf í dag. Þá kallaði forsetinn eftir því að heimurinn ætti að hafna yfirráðum eins, eða nokkurra landa. „Stór ríki ættu að koma fram við smærri ríki sem jafningja í stað þess að koma fram vilja sínum gegn þeim,“ sagði Jinping.Samkvæmt AFP fréttaveitunni lauk Jinping fjögurra daga verð sinni um Sviss með langri ræðu í Evrópuhöfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna. Í ræðu sinni sagði hann að Kína ætlaði sér að byggja langvarandi frið í heiminum. Þá sagði Jinping að Kína hefði „alltaf sett réttindi fólks og hagsmuni ofar öllu öðru“. „Við höfum unnið mikið að því að þróa og viðhalda mannréttindum. Kína mun aldrei sækjast eftir útþenslu, yfirráðum eða áhrifasvæði,“ sagði hann. Eins og Reuters bendir á hafa stjórnvöld í Peking um árabil verið sökuð um gróf og ítrekuð mannréttindabrot af mannréttindasamtökum og öðrum stjórnvöldum. Þá hefur Kína ólöglega lýst yfir yfirráðum sínum yfir nánast öllu Suður-Kínahafi, þvert á vilja smærri nágranna sinna.Russia and the US have the most nuclear weapons of any nation in the world by far, with France in a distant third pic.twitter.com/lPhl7nhCrD— AFP news agency (@AFP) January 18, 2017
Mest lesið Vegfarandinn er látinn Innlent „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Innlent „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Innlent Maður stunginn í brjóstkassann í nótt Innlent Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Erlent Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Innlent Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn Innlent Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Erlent „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Fleiri fréttir Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Sjá meira