Skoðun

Jafnrétti í raun

Ásgerður Halldórsdóttir skrifar
Seltjarnarnesbær hlýtur Gullmerki Jafnlaunaúttektar PwC í desember sl.

Ég vil fagna að Þorsteinn Víglundsson, nýr ráðherra félags- og jafnréttismála, ætli að láta það vera sitt fyrsta verk að leggja fram frumvarp að fyrirtæki með 25 starfsmenn eða fleiri láti framkvæma jafnlaunavottun. Þetta hefði átt að vera komið á fyrir löngu. Með jafnlaunaúttekt geta bæjarfulltrúar sveitarfélaga séð hvernig launasetning sveitarfélagsins er meðal starfsmanna bæjarins og þannig komið í veg fyrir kynbundinn launamun.

PwC framkvæmdi jafnlaunaúttekt á launagögnum hjá Seltjarnarnesbæ fyrir launatímabilið febrúar 2016. Í tilkynningu frá PwC er þessi mæling sögð sú fyrsta sem þeir hafa framkvæmt meðal fyrirtækja og stofnana, þar sem laun kvenna mælast hærri en laun karla bæði í grunnlaunum og heildarlaunum.

Niðurstaðan var eftirfarandi: Grunnvinnulaun kvenna voru 2,7% hærri en grunnlaun karla. Heildarlaun kvenna voru 0,9% hærri en heildarlaun karla.

PwC veitir fyrirtækjum og stofnunum Gullmerki Jafnlaunaúttektar PwC ef bæði launamunur grunnlauna og heildarlauna er undir 3,5% sem viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur. Fulltrúar PwC segja að afar vel hafi tekist til við að ná utan um og útskýra launadreifingu í greiningunni á grundvelli þeirra fjölmörgu ólíku breyta sem notaðar voru. Skýringargildi launadreifingar er sérlega hátt, eða 91% og því aðeins 9% launadreifingar sem er óútskýrt. Óvissa í túlkun niðurstaðna er því hverfandi.

Það er afar jákvætt fyrir bæjarfélagið að hljóta gullmerkið, það sýnir staðfestu bæjarstjórnar að stuðla að jafnrétti og gerir bæinn að eftirsóknarverðari vinnustað. Launamunur hjá Seltjarnarnesbæ er mjög lágur og engar vísbendingar að um kerfisbundinn launamun sé að ræða. Seltjarnarnes er með lægsta launamun sem mælst hefur á heildarlaunum meðal opinberra stofnana og bæjarfélaga. Ég hvet félaga mína í sveitarstjórnum til að láta framkvæma jafnlaunaúttekt sem allra fyrst, þetta er tæki til að jafna kynbundinn launamun sé hann til staðar. Sveitarstjórnarfólk á að vera stolt yfir því að geta upplýst kjósendur sína og starfsmenn bæjarfélagsins, um að ekki sé til staðar kynbundinn launamunur í þeirra sveitarfélagi.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir

Svona lítur stjórnarsáttmálinn út

Formenn Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar undirrituðu sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf í Gerðarsafni í Kópavogi í dag klukkan 14:30.




Skoðun

Sjá meira


×