Umfangsmikil leit að finnskum manni sem dæmdur var fyrir að drekkja fólki Atli Ísleifsson skrifar 17. janúar 2017 11:45 Brotin áttu sér öll stað í Norður-Karelíu í austurhluta Finnlands, á árunum 2007 til 2014. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Lögregla í Finnlandi leitar nú manns sem var í dag dæmdur í fjórtán og hálfs árs fangelsi fyrir tvö manndráp, þrjár tilraunir til manndráps og fjölmörg brot til viðbótar. Hinn 51 árs gamli Pekka Tapani Seppänen var ekki á heimili sínu þegar lögregla fór þangað til að sækja hann í morgun. „Nú leitum við að manninum á öllum hugsanlegum stöðum. Við hófum leit um leið og dómurinn féll og fjölmennt lið tekur þátt í leitinni. Þetta er umfangsmikil aðgerð og í forgangi,“ segir rannsóknarlögreglumaðurinn Kimmo Wetterstrand í samtali við Ilta-Sanomat. Maðurinn hefur í fjölmiðlum verið kallaður „raðdrekkjarinn frá Kontiolahti“. Í ákæru sagði að hann hafi farið með fórnarlömb sín, sem áttu það sameiginlegt að vera illa synd, út á stöðuvatn þar sem hann reyndi að fá þau til að hrasa út í vatnið. Áður hafði komið fram að fórnarlömbin hafi setið að sumbli með Seppänen og var upphaflega talið að um slys hafi verið að ræða sem rekja mætti til áfengisneyslu. Í frétt Hbl er haft eftir lögreglu að maðurinn sé mjög hættulegur, en hann var í gæsluvarðhaldi í nokkra mánuði á meðan rannsókn stóð yfir. Brotin áttu sér öll stað í Norður-Karelíu í austurhluta Finnlands, á árunum 2007 til 2014.
Mest lesið Vegfarandinn er látinn Innlent „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Innlent Maður stunginn í brjóstkassann í nótt Innlent „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Innlent Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Erlent Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Innlent Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn Innlent Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Erlent „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Fleiri fréttir Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Sjá meira