ESB krefur Kínverja rannsóknar á ásökunum um pyndingar Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. janúar 2017 15:43 Evrópusambandið gagnrýnir Kínverja harðlega. Á myndinni er Xi Jinping, forseti Kína. Vísir/AFP
Evrópusambandið krefst þess að ríkisstjórn Kína rannsaki ásakanir þriggja mannréttindalögfræðinga um pyndingar og auk þess er þess krafist að Kínverjar leysi úr haldi pólítíska fanga. Meðferð mannréttindamála af hálfu stjórnvalda undir forustu Xi Jinping, forseta Kína, hefur verið harðlega gagnrýnd. Guardian greinir frá. Lögfræðingarnir þrír sem um ræðir, voru handteknir í júlí árið 2015, í aðgerðum stjórnvalda þar í landi sem beindust sérstaklega gegn einstaklingum sem hafa beitt sér í þágu mannréttinda. Rúmlega 250 manns voru handteknir í aðgerðunum en mörgum var haldið af lögreglu í átján mánuði, án dóms og laga. Xie Yang, er einn þeirra lögfræðinga sem hafa verið í haldi kínversku ríkisstjórnarinnar og lýsir slæmri meðferð lögreglumanna. Hann segist hafa verið barinn en honum var jafnframt neitað um mat og drykk, auk þess sem hann fékk engan svefn. Þá hótuðu lögreglumennirnir honum ítrekað. „Ef þessar fregnir af pyndingum verða staðfestar, þá á að sækja þessa einstaklinga til saka,“ segir meðal annars í tilkynningu Evrópusambandsins um málið. Mikilvægt að þessar ásakanir verði rannsakaðar. „Ef Kína vill sýna umheiminum að hér sé um að ræða ábyrgðarfullan aðila í alþjóðasamfélaginu og til þess að hljóta virðingu sem alþjóðaafl, er grundvallaratriði að Kína virði alþjóðlegar skuldbindingar sínar í mannréttindamálum.“
Mest lesið Maður stunginn í brjóstkassann í nótt Innlent Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Innlent „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Vegfarandinn er látinn Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Þriðjungur þunglyndra náði fullum bata með „heilasjúkraþjálfun“ Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Sæbraut Innlent Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn Innlent Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Erlent Fleiri fréttir Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sjá meira