Fagurfræðilegir nytjahlutir Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 13. mars 2017 13:00 "Við köllum þetta skúlptúríska nytjahluti, hlutir sem ganga upp fagurfræðilega og hægt er að líta á sem skrautmuni en hafa innbyggða funksjón.“ Mynd/Eyþór „
Það er eitthvað fallegt við það að annað okkar hafi unnið í hörð efni eins og stál og steypu og hitt í mjúk. Ég vil meina að við séum killerkombó, “ segir Baldur Björnsson, mynd- og raftónlistarmaður, en hann skipar hönnunartvíeykið And Anti Matter ásamt Þóreyju Björk Halldórsdóttur fatahönnuði. Baldur og Þórey frumsýna línu skúlptúrískra nytjahluta á komandi HönnunarMars sem urðu til eftir samvinnu þeirra við jóladagatal Hönnunarmiðstöðvar.„Okkur hafði lengi langað til að vinna saman þegar við vorum fengin til að hanna jóladagatalið. Meðfram því hönnuðum við einnig sýningar- og sölurými í miðstöðinni og hluti inn í það. Í þeirri vinnu urðu til prótótýpur að áhugaverðri, mögulegri línu sem við kynnum nú á HönnunarMars,“ útskýrir Baldur. „Við köllum þetta skúlptúríska nytjahluti, hlutir sem ganga upp fagurfræðilega og hægt er að líta á sem skrautmuni en hafa innbyggða funksjón. Við sýnum fatahengi, ljós og eins konar fjölnota stykki sem hægt er að raða upp á mismunandi hátt og nota undir blóm, smáhluti og jafnvel kökur. Efnið er stál og steinsteypa sem við síðan málum og vinnum áferðir á og einnig korkur. Ljósin eru neonljós, líkt og eru í skiltum.“„Fjölnota stykki sem hægt er að raða upp á mismunandi hátt og nota undir blóm, smáhluti og jafnvel kökur.“ Mynd/And Anti MatterHver hlutur kemur til með að verða framleiddur eftir pöntun. Baldur segir þau Þóreyju ekki líta á takmarkaða framleiðslugetu á Íslandi sem hindrun heldur tækifæri. „Framleiðslugeta á Íslandi er lítil og kallar því á ákveðna sköpun. Við höfum sóst eftir því að vinna með smærri verksmiðjum og leyfum ferlinu að ráða niðurstöðunni. Litirnir fara til dæmis eftir því hvaða litaskala Pólýhúðun vinnur með, hæfa þeir? Þarf að endurhugsa eitthvað? Það verður ákveðin víxlverkun og eitthvað nýtt verður til. Við lítum ekki á það sem veggi heldur sem stökkpall að nýjum útfærslum.„Ég vil meina að við séum killerkombó,“ segir Baldur Björnsson, mynd- og raftónlistarmaður, en hann skipar hönnunartvíeykið And Anti Matter ásamt Þóreyju Björk Halldórsdóttur fatahönnuði. mynd/eyþórÞað sem okkur finnst einnig svo fallegt við þessi litlu verkstæði með sérhæfða þekkingu er að það er svo auðvelt að leita til þeirra. Maður er strax kominn inn á gólf í verksmiðjunni, þar verður til samtal og fólk miðlar sinni sérþekkingu. Slík nærsamvinna er gefandi,“ segir Baldur.Viðburður And Anti Matter á HönnunarMars kallast Áður óútgefið og stendur dagana 24.-26. mars. Sýningin fer fram í einni minnstu verksmiðju í Reykjavík. „Við sýnum í Kolburstaverksmiðjunni Kóral sf. á Vesturgötu 55 en hún hefur starfað í 55 ár. Ég tengist þessari verksmiðju því afi minn stofnaði hana. Afi er hættur en sá sem tók við var svo vinsamlegur að leyfa okkur að nota hana sem sýningarrými.“
Mest lesið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Maggie Smith er látin Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Lífið Í hnapphelduna með krókódílamanninum Lífið Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Lífið Fleiri fréttir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Sjá meira