„Verðum að bera traust til stjórnenda“ Sveinn Arnarsson skrifar 28. mars 2017 10:13 Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður stjórnar LV Vísir/Ernir
Um 40 prósent hlutabréfa í HB Granda eru í eigu innlendra lífeyrissjóða. Þar af er Lífeyrissjóður verslunarmanna næststærsti eigandi HB Granda en lífeyrissjóðurinn á 13 prósenta hlut í fyrirtækinu. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður stjórnar LV, segir sjóðinn vilja vera samfélagslega ábyrgan „Þarna eru stjórnendur að taka ákvörðun sem þeir hljóta að telja að sé félaginu fyrir bestu og eftir því sem ég kemst næst þá ætti þessi ákvörðun ekki að koma mikið á óvart. Þeir hafa verið að byggja landvinnslu kerfisbundið upp á Granda síðustu tvö ár svo það hefur legið ljóst fyrir að þeir hafa viljað flytja landvinnslu og efla hana í Reykjavík, því miður á kostnað landvinnslu á Akranesi,“ segir Guðrún. Á Akranesi starfa um 270 starfsmenn innan samstæðu HB Granda, þar af starfa 93 við botnfiskvinnsluna. Staðan er mjög alvarleg en vinnsla fyrirtækisins á Akranesi er með stærstu vinnustöðum á Vesturlandi. Því er mikið í húfi. Málið er talið það alvarlegt að bæjarstjórn og bæjarstjóri Akraness funduðu strax í gærkveldi með þingmönnum Norðvesturkjördæmis og Vilhjálmi Birgissyni, formanni Verkalýðsfélags Akraness, í ráðhúsi sveitarfélagsins, til að fara yfir stöðu mála. „Við verðum að bera traust til stjórnenda fyrirtækja sem við fjárfestum í. Ef það traust þrýtur þá munum við sýna það með fótunum og munum gera það ef fyrirtæki fara í aðra átt en við viljum sjá,“ bætir Guðrún við.
Mest lesið Verulega minni verðbólga Viðskipti innlent Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu Atvinnulíf Mun leiða ferskvatnseldi hjá First Water Viðskipti innlent Frá RÚV til Coca-Cola Viðskipti Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Viðskipti innlent „Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“ Atvinnulíf Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Viðskipti innlent Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Viðskipti innlent Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Viðskipti innlent Enginn þarf að vera giftur lánunum sínum út lánstímann Samstarf Fleiri fréttir Verulega minni verðbólga Mun leiða ferskvatnseldi hjá First Water Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Spá enn einum fundinum án breytingar Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Munu fljúga til Nashville næsta sumar Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Átta sagt upp hjá Arion banka Bein útsending: Ársfundur Orkustofununar á Akureyri Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Fjármálaeftirlitið samþykkir samruna Landsbankans og TM Verður framkvæmdastjóri á hugbúnaðarsviði Origo Geta veitt fyrirtækjum hagstæðari lán Telur vaxtahækkanir viðskiptabankanna brattar Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi – Snjöll framtíð Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið Hrönn, Viktor og Þórdís til Varðar Ísak Einar til Samtaka atvinnulífsins Andri aðstoðarframkvæmdastjóri Júní Sunna veitir Livio samkeppni í frjósemi Enn eitt félag Quangs gjaldþrota Svekktur en ekki hissa á færri íbúðum í byggingu Færri íbúðir í byggingu en fyrir ári Gengi Icelandair flaug upp á við Vill laða að lágverðsverslun á Krókinn Spá 7,5 prósent stýrivöxtum í lok 2025 Sjá meira