RÚV textar innlent efni Margrét Magnúsdóttir skrifar 28. mars 2017 07:00 Helga Vala Helgadóttir skrifaði bakþanka sem birtust í Fréttablaðinu 20. mars sl. undir yfirskriftinni: Af hverju textum við ekki? Í greininni fjallar Helga um mikilvægt málefni og ber að þakka henni fyrir sitt framlag til umræðunnar. Í greininni fullyrðir Helga Vala að innlent sjónvarpsefni sé ekki textað og þar með ekki aðgengilegt öllum landsmönnum. Helgu hefur augljóslega yfirsést að þetta á ekki við um dagskrá allra miðla á Íslandi. Ríkisútvarpið, RÚV, hefur lagt ríka áherslu á að sinna textun af metnaði. Því er það okkur ljúft og skylt að upplýsa Helgu og aðra nánar um textun RÚV á innlendu dagskrárefni. Hjá RÚV er öll forunnin innlend dagskrá textuð eftir því sem unnt er og sama gildir um undirbúin innlend innslög í aðalfréttatíma sjónvarps. Innlendir þættir sem ekki næst að texta fyrir frumsýningu eru textaðir fyrir endursýningu. Árið 2013 hóf RÚV einnig textun frétta í beinni útsendingu og hefur það verið gert óslitið síðan. Þegar stóratburðir verða sem snerta alla landsmenn er kallaður til rittúlkur sem túlkar jafnóðum í beinni útsendingu. Þetta á við um sviptingar í stjórnmálunum, náttúruhamfarir heima fyrir og hryðjuverk úti í heimi. Það skal tekið fram að fréttir eru ekki alltaf tilbúnar löngu fyrir útsendingu heldur er þær oft í vinnslu fram á síðustu stundu. Því geta átt sér stað undantekningar frá meginreglunni sem leiðir til þess að einstaka fréttir eru ekki textaðar í heild, heldur eru meginatriði þeirra einungis dregin saman. Ríkisútvarpið kappkostar að mæta ólíkum þörfum eins og kostur er og hefur aukið textunarþjónustu á undanförnum misserum. Við vonumst til að halda áfram að bæta þjónustu okkar og tökum því ábendingum um umbætur fagnandi í gegnum vefgátt á vef okkar RÚV.is. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Riddarar kærleikans Halla Tómasdóttir Skoðun Um mennsku og samfélag Bolli Pétur Bollason Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium Skoðun Þegar Joe Camel varð jafngóður vinur barnanna og Mikki mús Eyrún Magnúsdóttir Skoðun Það er verið að hafa okkur að fíflum. Davíð Bergmann Skoðun Svarar ekki kostnaði að bjarga sjálfum sér Kári Helgason Skoðun Íslenska er ekki eina málið Lilja Magnúsdóttir Skoðun Að búa til steind getur haft skelfilegar afleiðingar! Elínrós Erlingsdóttir Skoðun Dauði vefsíðunnar eins og við þekkjum hana Kristján Már Hauksson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar Joe Camel varð jafngóður vinur barnanna og Mikki mús Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Riddarar kærleikans Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Um mennsku og samfélag Bolli Pétur Bollason skrifar Skoðun Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium skrifar Skoðun Sársaukafull vaxtarmörk Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Tölum íslensku Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er Miðflokkurinn fyrir ungt fólk? Anton Sveinn McKee skrifar Skoðun Svarar ekki kostnaði að bjarga sjálfum sér Kári Helgason skrifar Skoðun Um orkuskort, auðlindir og endurvinnslu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Er padda í vaskinum? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar Skoðun Rannsökum og ræðum menntakerfið Kolbrún Þ. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæra sig ekki um evruna Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til fjölmiðla Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Horfið á möguleikana í samfélagslegri ábyrgð Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Aftur til fortíðar Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Að kjarna orku þjóðar Ísak Einar Rúnarsson skrifar Skoðun Orðræða seðlabankastjóra veldur mér áhyggjum Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Flogið á milli landa á endurnýjanlegri orku: Draumsýn eða Raunveruleiki? Gnýr Guðmundsson skrifar Skoðun Það er verið að hafa okkur að fíflum. Davíð Bergmann skrifar Skoðun Útboð á Fjarðarheiðargöngum Hildur Þórisdóttir skrifar Skoðun Hvert á að fara með íslenskt þjóðfélag? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Svikin loforð gagnvart börnum? Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar Skoðun Að búa til steind getur haft skelfilegar afleiðingar! Elínrós Erlingsdóttir skrifar Skoðun Hvar eru sálfræðingarnir? Pétur Maack Þorsteinsson skrifar Skoðun Íslenska er ekki eina málið Lilja Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hvar er grunnskólinn? Kristján Hrafn Guðmundsson skrifar Skoðun Er lýðræðislegt að senda vopn til Úkraínu? Hildur Þórðardóttir skrifar Skoðun Það á ekki að vera dekur að geta sótt sér sálfræðiþjónustu Ólafía Sigurjónsdóttir skrifar Sjá meira
Helga Vala Helgadóttir skrifaði bakþanka sem birtust í Fréttablaðinu 20. mars sl. undir yfirskriftinni: Af hverju textum við ekki? Í greininni fjallar Helga um mikilvægt málefni og ber að þakka henni fyrir sitt framlag til umræðunnar. Í greininni fullyrðir Helga Vala að innlent sjónvarpsefni sé ekki textað og þar með ekki aðgengilegt öllum landsmönnum. Helgu hefur augljóslega yfirsést að þetta á ekki við um dagskrá allra miðla á Íslandi. Ríkisútvarpið, RÚV, hefur lagt ríka áherslu á að sinna textun af metnaði. Því er það okkur ljúft og skylt að upplýsa Helgu og aðra nánar um textun RÚV á innlendu dagskrárefni. Hjá RÚV er öll forunnin innlend dagskrá textuð eftir því sem unnt er og sama gildir um undirbúin innlend innslög í aðalfréttatíma sjónvarps. Innlendir þættir sem ekki næst að texta fyrir frumsýningu eru textaðir fyrir endursýningu. Árið 2013 hóf RÚV einnig textun frétta í beinni útsendingu og hefur það verið gert óslitið síðan. Þegar stóratburðir verða sem snerta alla landsmenn er kallaður til rittúlkur sem túlkar jafnóðum í beinni útsendingu. Þetta á við um sviptingar í stjórnmálunum, náttúruhamfarir heima fyrir og hryðjuverk úti í heimi. Það skal tekið fram að fréttir eru ekki alltaf tilbúnar löngu fyrir útsendingu heldur er þær oft í vinnslu fram á síðustu stundu. Því geta átt sér stað undantekningar frá meginreglunni sem leiðir til þess að einstaka fréttir eru ekki textaðar í heild, heldur eru meginatriði þeirra einungis dregin saman. Ríkisútvarpið kappkostar að mæta ólíkum þörfum eins og kostur er og hefur aukið textunarþjónustu á undanförnum misserum. Við vonumst til að halda áfram að bæta þjónustu okkar og tökum því ábendingum um umbætur fagnandi í gegnum vefgátt á vef okkar RÚV.is. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar
Skoðun Flogið á milli landa á endurnýjanlegri orku: Draumsýn eða Raunveruleiki? Gnýr Guðmundsson skrifar