Syngur yfir gullsmíðinni Sigríður Inga Sigurðardóttir skrifar 24. mars 2017 16:30 “Þessi mikili áhugi minn á skartgripum kviknaði sennilega á barnsaldri þegar ég fékk að leika mér með skartgripakistil sem mamma átti,” segir Svana. VÍSIR/GASSI
Svana Berglind lauk sveinsprófi í gull- og silfursmíði frá Tækniskólanum vorið 2016 og sest aftur á skólabekk næsta haust í meistaraskólanum. Hún er einn af stofnendum Raus Reykjavík sem tekur þátt í HönnunarMars og sýnir þar sína fyrstu skartgripalínu sem gerð er í samstarfi við Bláa lónið.Raus tekur þátt í HönnunarMars í fyrsta sinn í ár. MYND/GASSIHverjar standa að Raus með þér? Með mér eru Auður Hinriksdóttir skartgripahönnuður, Harpa Kristjánsdóttir, gull- og silfursmíðameistari, og Rut Ragnarsdóttir, skartgripahönnuður og myndlistarkona.Hvaðan kemur nafnið Raus Reykjavík? Raus varð til úr upphafsstöfum þriggja okkar (Rut, Auður, Svana) en við hófum samstarfið áður en Harpa kom inn í myndina. Það kom til tals að hún fengi sinn staf líka og nafnið yrði Hraus en þar sem er oft galsi í hópnum og við höfðum hlegið mikið að hugmyndinni um „rausandi“ kerlingar sitjandi við smíðaborð þá hélt þetta sér. Í lógói fyrirtækisins er au-ið í Raus einnig breiðara en hinir stafirnir en það kemur til af því að tákn gulls í lotukerfinu er Au.Hvers vegna ákvaðstu að læra gullsmíði? Þessi mikli áhugi minn á skartgripum kviknaði sennilega á barnsaldri þegar ég fékk að leika mér með skartgripakistil sem mamma átti. Svo álpaðist ég á námskeið hjá Leifi Jónssyni gullsmíðameistara og þá rann loksins upp fyrir mér hvað ég ætlaði að verða þegar ég yrði stór.Línan EINN / ONE er unnin út frá smásjármyndum af kísli úr Bláa lóninu sem er eftirsóttur í húðvörur. MYND/GASSIHvað varstu að gera þegar þú hófst námið? Ég var skrifstofustjóri hjá bílaumboðinu Heklu og söngkona í hjáverkum þegar ég hóf námið. Það er gríðarlega erfitt að komast inn í gullsmíðadeildina svo að á meðan ég beið eftir því að komast inn fór ég í hönnunarnám í eitt ár til að hafa betri bakgrunn. Átta nemar komast inn í námið á hverju hausti og um áramót heltast nokkrir úr lestinni. Námið er mjög strangt og svo er gríðarlega erfitt að komast á samning svo að við vorum einungis tvö úr mínum bekk sem útskrifuðumst á réttum tíma.Syngur þú við gullsmíðina? Já, ég kem víst með þeim ósköpum að ef ég er ekki syngjandi þá er ég flautandi. Ég er bara svo stálheppin að stelpurnar í Raus Reykjavík segja að það sé bara heimilislegt en dætur mínar deila víst ekki þeirri skoðun.Hvar er hægt að kaupa skart frá ykkur? Um helgina verður heimasíðan okkar, www.raus.is, opnuð og þar munu á næstunni koma inn myndir af því sem við erum að hanna og smíða og þar er einnig hægt að kaupa skart frá okkur eða gera sérpantanir. Sýningin okkar, vegna HönnunarMars verður haldin í verslun Bláa lónsins, Laugavegi 15, frá 23.-26. mars.
Mest lesið Maggie Smith er látin Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Lífið Í hnapphelduna með krókódílamanninum Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Lífið Fleiri fréttir Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Ekkert mál að hlaupa alveg staurblindur Sjá meira