Steinmeier segir Erdogan vera að stofna árangri Tyrklands í hættu Atli Ísleifsson skrifar 22. mars 2017 13:10 Frank-Walter Steinmeier, forseti Þýskalands, flutti innsetningarræðu sína í þýska þinginu í morgun. Vísir/AFP
Frank-Walter Steinmeier, forseti Þýskalands, segir Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta vera að stofna þeim árangri sem Tyrkir hafi náð á síðustu árum í hættu og eyðileggja samskipti landsins við bandamenn sína. Samskipti tyrkneskra stjórnvalda og stjórnvalda í fjölda aðildarríkja ESB hafa versnað til muna á síðustu vikum eftir að tyrkneskum ráðherrum var meinað að koma fram á fjöldafundum í öðrum Evrópuríkjum í tengslum við fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrárbreytingar í Tyrklandi. Steinmeier var nýverið kjörinn nýr forseti Þýskalands og nýtti innsetningarræðu sína í morgun til að gagnrýna Erdogan og sagði Þjóðverja hafa áhyggjur af gangi mála í Tyrklandi. Sagði hann að árangurinn sem Tyrkir hafi náð á síðustu árum ætti á hættu að verða að engu. „Erdogan forseti, þú ert að stofna öllu því í hættu sem þú, ásamt öðrum, hefur byggt upp,“ sagði Steinmeier. Fulltrúar Tyrklandsstjórnar hafa ítrekað sakað þýsk stjórnvöld um nasisma á síðustu dögum með því að banna tyrkneskum ráðherrum að koma fram á fjöldafundum í ákveðnum aðildarríkjum ESB þar sem fjöldi tyrkneskra ríkisborgara búa. „En hættu þessum hræðilega nasistasamanburði! Ekki slíta á tengslin við þá sem vilja eiga samstarf við Tyrkland! Virtu réttarríkið og frelsi fjölmiðla og fréttamanna! Og slepptu Deniz Yücel,“ sagði Steinmeier, en þýsk-tyrkneskur fréttmaður Yücel sem er nú í haldi tyrkneskra yfirvalda.
Mest lesið Mennirnir tveir fundnir Innlent Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Innlent Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Innlent Mættur í Samfylkinguna Innlent Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Innlent Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Erlent Hlaut varanlegan skaða vegna myglu en fær ekki krónu Innlent Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Innlent Fleiri fréttir Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Alríkisákærur gefnar út á hendur borgarstjóra New York Hótar að beita kjarnorkuvopnum gegn árás með hefðbundnum vopnum Vinna að þriggja vikna vopnahléi á milli Ísrael og Hezbollah Selenskí varar við „kjarnorku hörmung“ Loftárásum ætlað að undirbúa mögulega innrás „Virkið“ Vuhledar að falli komið Skutu skotflaug í Kyrrhafið í fyrsta sinn í rúm fjörutíu ár Manngerð hlýnun gerði flóðin í Evrópu tvöfalt líklegri en ella Unnu spellvirki á finnska þinghúsinu til að mótmæla móvinnslu Sjá meira