Hneykslar vinkonurnar Sigríður Inga Sigurðardóttir skrifar 30. mars 2017 10:00 Buxurnar eru úr Topshop, síða, svarta blússan er keypt í H&M, hvíta loðpeysan er úr náttfatadeildinni í Primark og rauðu skórnir eru líka úr Primark. VÍSIR/STEFÁN
Lena hefur alltaf haft mikinn áhuga á straumum og stefnum í tískuheiminum en hún lærði hárgreiðslu og útskrifaðist frá Tækniskólanum fyrir tæpum sex árum. Fljótlega eftir útskrift keppti hún í hárgreiðslu fyrir hönd Íslands í WorldSkills sem er heimsmeistarakeppni iðn- og verkgreina og náði ágætum árangri.Velvet buxur og peysa frá Junik, Kringlunni. Úlpan er úr Gyllta kettinum og gulu skórnir úr Rauða Kross búðinni á Laugaveginum.„Mér finnst ekkert eins skemmtilegt og að búa eitthvað til með höndunum, hvort sem það tengist hári, fatahönnun eða teiknun. Hárgreiðslan er mitt aðalstarf en ég var ákveðin í því strax sem lítil stelpa að verða hárgreiðslukona. Undanfarið hef ég líka verið að hanna föt í samstarfi við þrjá aðra. Fatalínan heitir Riptide en auk mín eru það Stefán John Turner, Ásgeir Örn Eyjólfsson og Arnar Þorri Sigþórsson,“ segir Lena, sem vinnur á hársnyrtistofunni Blondie í Mörkinni. Riptide fatalínan hefur vakið töluverða athygli og þau hafa selt flíkur til Bandaríkjanna og Bretlands og fyrirhugað er að kynna fatalínuna hérlendis innan skamms. Vinkonurnar ýmsu vanarLena hefur gaman af því að blanda saman alls konar stíl þegar kemur að fatavali. „Það fer eftir því í hvernig skapi ég er, hvernig ég klæði mig. Ég myndi segja að ég hafi minn eigin stíl, ég er óhrædd við að prófa ýmsar samsetningar og hef mjög oft hneykslað vinkonur mínar sem hrista stundum hausinn yfir mér. Þær eru þó orðnar ýmsu vanar.“Blússan er frá Primark í London, hermannabuxurnar úr Topshop í London, skórnir eru keyptir í Skórnir þínir í Smáralind.Hún segir sinn helsta veikleika þegar kemur að tísku og útliti að hún geti verið dálítið sein að taka sig til. Henni finnst gaman að kaupa föt en heldur þó ekki upp á neitt sérstakt fatamerki. „Ég er ekkert merkjafrík. Ég kaupi það sem mér finnst fallegt og þægilegt, sama hvað það heitir, þannig að það er allur gangur á því hvar ég kaupi fötin mín. Ég hef verið mikið úti í London og verslað aðeins í Primark og H&M eins og hver annar Íslendingur en uppáhaldsbúðirnar mínar eru Corner Shop í Smáralind, en ég elska að fara þangað og fæ hvergi betri þjónustu, Gyllti kötturinn, Bershka og Topshop í London.“ Uppáhaldsflík Lenu er úlpa úr Gyllta kettinum sem er bæði falleg og þægileg og heldur vel á henni hita yfir kaldan veturinn. Lena segist ekki nota aðra fylgihluti dagsdaglega en hringana sína og Marilyn Monroe er efst á listanum yfir tískufyrirmyndirnar.
Mest lesið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Lífið Í hnapphelduna með krókódílamanninum Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Lífið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Lífið Fleiri fréttir Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Ekkert mál að hlaupa alveg staurblindur „Æsandi að hugsa til þess að annar maður horfi á“ Breyttu Kolaportinu í risa skemmtistað „Æi góði hoppaðu upp í rassgatið á þér!“ Norðlenskur útsýnisdraumur „Hvar eru allir herramennirnir?“ Stefnumótunarferð Fossa með mökum í Prag Sjá meira