Moyes hótaði að berja íþróttafréttakonu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. apríl 2017 09:00 Moyes og félagar í Sunderland stefna hraðbyri niður í ensku B-deildina. vísir/getty
David Moyes, knattspyrnustjóri Sunderland, hefur beðist afsökunar á því að hafa hótað íþróttafréttakonu barsmíðum. Eftir markalaust jafntefli Sunderland og Burnley í síðasta mánuði spurði Vicki Sparks hjá BBC Moyes hvort hann fyndi fyrir meiri pressu vegna þess að Ellis Short, stjórnarmaður Sunderland, væri í stúkunni að horfa á leikinn. Moyes var langt frá því að vera ánægður með þessa spurningu og eftir að viðtalinu lauk hellti hann sér yfir Sparks. „Ég myndi passa mig. Þú gætir verið slegin, jafnvel þótt þú sért kona. Passaðu þig næst þegar þú kemur,“ sagði Moyes. Kollegi Sparks náði þessari hótun Moyes á myndband. Skotinn hefur nú beðist afsökunar á ummælum sínum að því er fram kemur í yfirlýsingu frá BBC. Moyes og lærisveinar hans sitja á botni ensku úrvalsdeildarinnar með aðeins 20 stig, átta stigum frá öruggu sæti. Stjóraferill Moyes hefur verið á hraðri niðurleið undanfarin ár, eða allt frá því hann tók við Manchester United af Sir Alex Ferguson sumarið 2013. Moyes entist ekki eitt tímabil á Old Trafford og var svo rekinn frá Real Sociedad í nóvember 2015. Og nú stefnir allt í að hann sé að fara með Sunderland niður um deild.
Enski boltinn Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira