Mótmælendur kveiktu í þinghúsi vegna umdeildrar stjórnarskrárbreytingar Anton Egilsson skrifar 1. apríl 2017 11:43 Mikill eldur logaði i þinghúsinu. Vísir/AFP
Mótmælendur í Paragvæ kveiktu í þinghúsi landsins í gærkvöldi í kjölfar þess að öldungardeild þingsins samþykkti tillögu að umdeildri stjórnarskrárbreytingu. Breytingin hefur það í för með sér að sitjandi forseti, Horacio Cartes, og aðrir forverar hans geta gefið kost á sér að nýju í næstu forsetakosningum. Greinir BBC frá því að hundruð mótmælanda hafi verið saman komnir fyrir utan þinghúsið til að mótmæla stjórnarskrárbreytingunni og fór allt gjörsamlega úr böndunum. Komust nokkrir mótmælendanna inn í þinghúsið þar sem þeir lögðu skrifstofur þeirra þingmanna sem samþykktu tillöguna í rúst og kveiktu í blöðum og húsgögnum. Beitti lögregla meðal annars vatnsbyssu og skaut gúmmíkúlum að mótmælendum til að aftra för þeirra að þinghúsinu. Töluverður fjöldi fólks slasaðist en á meðal þeirra voru mótmælendur, lögreglumenn og stjórnmálamenn. Þá börðust slökkviliðsmenn við eldinn sem varaði í eina til tvær klukkustundir. Samkvæmt núverandi stjórnarskrá frá árinu 1992 er sú regla í gildi að forseti landsins getur einungis setið eitt kjörtímabil sem varir í fimm ár. Nái tillagan fram að ganga gæti því Cartes boðið sig fram til endurkjörs þegar kjörtímabili hans lýkur á næsta ári. Áður en núverandi stjórnarskráin tók gildi hafði Paragvæ verið undir einræðisstjórn í um 35 ára skeið. Alls 25 af 45 öldungardeildarþingmönnum samþykktu tillöguna sem vakið hefur mikla reiði almennings í landinu. Mun tillagan næst vera lögð fyrir fulltrúardeild þingsins en þar hefur flokkur Cartes meirihluta svo líklegt þykir að hún verði samþykkt þar. Fari svo verður tillagan borin undir þjóðaratkvæði.
Mest lesið Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Mættur í Samfylkinguna Innlent Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Innlent Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Erlent Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Innlent Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Innlent Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Innlent Unglingar á ofsahraða reyndu að stinga lögregluna af Innlent Fleiri fréttir Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Alríkisákærur gefnar út á hendur borgarstjóra New York Hótar að beita kjarnorkuvopnum gegn árás með hefðbundnum vopnum Vinna að þriggja vikna vopnahléi á milli Ísrael og Hezbollah Selenskí varar við „kjarnorku hörmung“ Loftárásum ætlað að undirbúa mögulega innrás „Virkið“ Vuhledar að falli komið Skutu skotflaug í Kyrrhafið í fyrsta sinn í rúm fjörutíu ár Manngerð hlýnun gerði flóðin í Evrópu tvöfalt líklegri en ella Unnu spellvirki á finnska þinghúsinu til að mótmæla móvinnslu Hútar vilja háþróaðar stýriflaugar frá Rússum Combs sakaður um enn eina kynferðisárásina Infowars á uppboð í nóvember upp í skuld við syrgjandi fjölskyldur Starfsmenn Boeing sagðir hafna tilboði um 30 prósent launahækkun Sjá meira