Lífið

Úr Biggest loser og í grunnbúðir Everest

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Nokkrir úr hópnum sem fara upp í grunnbúðirnar.
Nokkrir úr hópnum sem fara upp í grunnbúðirnar. Mynd/Sigurbjörn
Sigurbjörn Gunnarsson, sem missti 93 kíló í þriðju þáttaröð Biggest Loser og vann heimakeppnina er á leiðinni í grunnbúðir Everest, hæsta fjalls heims. Til stendur að ferðin standi yfir í alls sextán daga og fer hann með nokkuð fjölmennum gönguhóp.

„Ég var búinn að vera lengi að leita mér að einhverju krefjandi að gera í ár. Rakst þá á auglýsingu frá vilborg.is um þessa ferð og eftir nokkuð langan umhugsunartíma þá ákvað ég að skella mér,“ segir Sigurbjörn.

Hann segist lengi hafa fylgst með Íslendingum reyna við fjallið og hafði hann alltaf langað að reyna sjálfur. Sérstaklega þegar hann var yngri.

„Þegar maður verður eldri breytast draumar manns lítillega og maður sættir sig við að sumir draumar verði ekki að veruleika,“ segir Sigurbjörn og bætir því við að þá þurfi maður að laga drauma sína að aðstæðunum.

Sigurbjörn segir að án Biggest Loser væri hann ekki á leiðinni upp í grunnbúðir fjallsins. „Það er ekki spurning að ef ég hefði ekki farið í Biggest Loser þá væri ég ekki hérna í dag,“ segir hann.

Þá bætir Sigurbjörn því við að ástæðan sé sú að þættirnir hafi breytt lífstíl hans nánast algjörlega.

Eftir að Sigurbjörn lauk keppni í Biggest Loser í fyrra hefur hann afrekað ýmislegt sem áður hefði þótt ólíklegt. Sigurbjörn var þyngsti keppandinn í þriðju þáttaröð af keppninni. Alls fór hann úr 203,3 kílóum þegar hann hóf keppni og niður í rúm 110 kíló. Þar með missti hann nærri helming líkamsþyngdar sinnar.

Í viðtali við mbl.is í fyrra sagðist Sigurbjörn stefna að því að hlaupa tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu ásamt fjölskyldumeðlimum. Þá stefndi hann einnig að því að ganga upp á Súlur. Honum tókst síðasta sumar bæði að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu, þar sem hann safnaði fyrir Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri, og um verslunarmannahelgina tók hann þátt í sprett þríþraut.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×