Wenger: Það voru engar myndavélar í göngunum fyrir 10 til 15 árum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. maí 2017 13:00 Leikmenn koma út úr göngunum. Vísir/Getty
Margir tóku eftir því hversu vel á fór með leikmönnum Arsenal og Manchester United á Eimrates-leikvanginum í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Leikmenn Arsenal og Manchester United hafa ekki verið miklir vinir í gegnum tíðina en það virðist allt vera liðin tíð í dag. Phil Neville og Martin Keown, knattspyrnuspekingar í Match of the Day 2 þættinum á BBC, gagnrýndu þetta háttalag manna í þessum tveimur liðum sem eiga bæði þurfa á öllum mögulegum stigum að halda þessa dagana til að koma sér upp í Meistaradeildarsæti í ensku úrvalsdeildinni. Phil Neville tók Arsenal-manninn Nacho Monreal sérstaklega fyrir og sagði að það hafi verið eins og hann héldi að hann væri staddur í skírn en ekki að fara spila fótboltaleik á móti Manchester United. Arsenal vann leikinn á endanum 2-0 og Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, var spurður út í vinaleg samskipti leikmanna liðanna tveggja í göngunum rétt fyrir svona mikilavægan leik. „Ég skil vel að þetta hafi komið þeim í settinu á óvart því þetta sást ekki fyrir tíu til fimmtán árum. Svona er þetta bara í alþjóðlegum bolta í dag og það er sem dæmi hægt að sjá þetta fyrir leiki Real Madrid og Barcelona,“ sagði Arsene Wenger. Wenger viðurkenndi engu að síður að það hafi komið sér á óvart hversu vel á fór með leikmönnum liðanna. „Þetta kemur samt ekki í veg fyrir að menn mæti einbeittir til leiks. Við erum ekki vön því að sjá svona myndir en þetta bara hluti af nútímafótboltanum. Kannski gerðist þetta líka fyrir tíu til fimmtán árum en þá voru bara ekki myndavélar í göngunum,“ sagði Wenger. 'Monreal thinks he's at a christening!' A brutal assessment from a former #MUFC player. More ➡️ https://t.co/pcMr1anyiY #bbcfootball pic.twitter.com/N44kecycz7— BBC Sport (@BBCSport) May 8, 2017
Enski boltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Sjá meira