Erlent

Óveðrið í Texas: Hetjur björguðu kornabörnum frá drukknun

Anton Egilsson skrifar
Tvö kornabörn voru hætt komin þegar bíll sem þau voru farþegar í valt ofan í vatnsmikinn skurð og endaði á hvolfi. Mótorhjólaökumenn sem áttu leið hjá komu börnunum tveimur til bjargar.

Samkvæmt frétt Sky voru börnin stödd í bílnum ásamt föður sínum en þau hugðust flýja öflugan hvirfilbyl sem reið yfir hluta Texas fylkis í Bandaríkjunum um helgina. Á leið þeirra valt bíllinn og endaði á hvolfi ofan í vatnsmiklum skurði.

Sátu börnin tvö föst inn í bílnum þar til að nokkrir mótorhjólaökumenn sem komu auga á bílinn óðu út í skurðinn til þess að hjálpa föðurrnum að bjarga börnunum. Tókst þeim eftir mikið erfiði að rífa hurðir bílsins upp og koma börnunum tveimur út heilum á húfi.  

Hetjudáð mótorhjólaökumannanna náðist á myndband sem sjá má hér að neðan. Viðkvæmir eru varaðir við því að horfa á myndskeiðið.   




Fleiri fréttir

Sjá meira


×