Sigmundur einungis mætt einu sinni Snærós Sindradóttir skrifar 12. maí 2017 07:00 Þátttaka þingmanna í atkvæðagreiðslum segir ekkert um framlag þeirra á fundum hjá nefndum Alþingis. vísir/eyþór
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur mætt einu sinni til atkvæðagreiðslu á Alþingi frá þingsetningu, eða þann 22. desember 2016. Þá greiddi hann atkvæði í 28 skipti við afgreiðslu á svokölluðum bandormi. Alls hefur hann verið fjarverandi í 87,2 prósent tilfella frá því að þing kom saman síðastliðið haust. Sex þingfundadagar eru eftir fram að þingfrestun og sumarfríum í lok mánaðarins. Þátttaka alþingismanna í atkvæðagreiðslum er skrásett á heimasíðu Alþingis. Þingmenn mæta mjög misjafnlega vel til atkvæðagreiðslu en alla jafna eru ráðherrar mest fjarverandi við atkvæðagreiðslur. Þó eru á því undantekningar en sá þingmaður sem minnst hefur mætt, að Sigmundi undanskildum, er Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata. Ásta hefur verið fjarverandi við 88 atkvæðagreiðslur á tímabilinu eða í 38,8 prósent tilfella. Þar með hefur hún verið meira fjarverandi en allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar. Þó munar aðeins einni atkvæðagreiðslu á Ástu og Kristjáni Þór Júlíussyni menntamálaráðherra, sem hefur verið fjarverandi 87 sinnum. Það eru þingmenn stjórnarandstöðunnar sem mæta verst, ef frá er talinn menntamálaráðherra. Á eftir Sigmundi og Ástu Guðrúnu kemur Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sem hefur verið fjarverandi í þriðjungi atkvæðagreiðslna. Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknarflokksins hefur verið fjarverandi í 31 prósenti tilfella. Til eru þó þeir þingmenn sem varla láta sig vanta. Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstri grænna, hefur aldrei verið fjarverandi frá því að þing hófst. Hún hefur einu sinni tilkynnt fjarvist. Flokksbræðurnir Birgir Ármannsson og Óli Björn Kárason, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, hafa hvor um sig verið fjarverandi frá einni atkvæðagreiðslu. Þá hafa Samfylkingarmennirnir Logi Einarsson og Guðjón S. Brjánsson einnig aðeins verið fjarverandi einu sinni hvor um sig. Fréttablaðið óskaði eftir viðtali við Sigmund Davíð Gunnlaugsson um téðar fjarvistir með smáskilaboðum. Þeim svaraði Sigmundur skömmu síðar með sama hætti: „Sæl og blessuð. Nei takk. Ég er löngu hættur að svara svona rugli frá sérstökum áhugamönnum um mig. Ég er í vinnu sem þingmaður á hverjum einasta degi. Á þessu ári eru páskadagur og annar í páskum einu undantekningarnar. Það heyrir til undantekninga að ég mæti ekki í þinghúsið eða á skrifstofuna þegar eru þingfundardagar nema ég sé á fundum annars staðar á landinu. Hins vegar er ég iðulega að hitta fólk víðar en í þinghúsinu. Enn hafa ekki verið greidd atkvæði um tvísýnt mál á árinu. Mér sýnist fljótt á litið að það hafi verið þrír atkvæðagreiðsludagar á þinginu á þessu ári (fyrir utan tilfallandi atkvæðagreiðslur). Þar af var um helmingur allra atkvæðagreiðslna ársins sl. fimmtudag. Þann dag þurfti ég að fara á fundi í kjördæminu.“ Samkvæmt heimasíðu Alþingis hafa atkvæði verið greidd á níu mismunandi dögum frá áramótum.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Vegfarandinn er látinn Innlent „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Innlent Maður stunginn í brjóstkassann í nótt Innlent Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Erlent Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Innlent „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Innlent Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn Innlent Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Erlent „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Fleiri fréttir Tvö innbrot í verslanir í dag „Ég vil auðvitað klára kjörtímabilið“ „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Bæjarstjórinn óttast ekki fólksflótta úr Árborg Kveðst tilbúinn í kosningar þegar „þessi ríkisstjórn springur loksins“ „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Maðurinn sem var stunginn enn á sjúkrahúsi Banaslys á Sæbraut og stofnun nýs stjórnmálaflokks Vegfarandinn er látinn Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn Staða karlmennskunnar, kosningavetur og átök í Mið-Austurlöndum Talaði fyrir „tveggja ríkja lausn“ á allsherjarþingi Þriðjungur þunglyndra náði fullum bata með „heilasjúkraþjálfun“ Hlaupið í rénum en gasmengun gæti verið á svæðinu Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Ekið á gangandi vegfaranda við Sæbraut Maður stunginn í brjóstkassann í nótt „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Lítið jökulhlaup hafið í Skálm Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Sundrun á hægri vængnum og örvænting meðal fyrstu kaupenda Verslaði fyrir háar upphæðir með stolnu kreditkorti „Ég hitti ungt fjölskyldufólk sem er gjörsamlega að kikna“ Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Ullarvika til heiðurs íslensku sauðkindinni „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Verkfall á hjúkrunarheimilum ef lausn næst ekki á mánudag „Verðmæti fólgin í því að halda Reykjanesbraut opinni“ Sjá meira