Eiður Smári í úrvalsliðinu sem mætir United í heiðursleik Michael Carrick Tómas Þór Þórðarson skrifar 24. maí 2017 08:00 Eiður Smári Guðjohnsen á góðar minningar frá Old Trafford. vísir/afp
Eiður Smári Guðjohnsen, markahæsti leikmaður íslenska karlalandsliðsins frá upphafi, verður í úrvalsliðinu sem mætir Manchester United í heiðursleik Michael Carrick á Old Trafford 4. júní í sumar. Carrick, sem kom til United árið 2006 og hefur síðan þá unnið ensku úrvalsdeildina fimm sinnum, fær heiðursleik í tilefni þess að hann er búinn að spila fyrir félagið í ellefu ár en enski miðjumaðurinn hefur verið einn besti leikmaður liðsins í rúmlega áratug. Lið Manchester United í leiknum verður skipað að mestu leyti leikmönnum sem tóku þátt í að vinna Meistaradeildina árið 2008 en þar verða Ryan Giggs, Paul Scholes, Darren Fletcher, Owen Hargreaves, Park Ji-Sung og fleiri góðir. Eiður Smári verður í liði með flottum leikmönnum eins og fyrrverandi félögum sínum úr Englandsmeistaraliði Chelsea, Frank Lampard og John Terry, en í liðinu verða einnig Jamie Carragher Michael Owen og svo Spánverjarnir Michel Salgado og Gaizka Mendieta. Allur ágóði af leiknum rennur til góðgerðamála en fleiri stór nöfn eiga eftir að bætast við listann. Liðin eins og þau eru skipuð í dag má sjá hér að neðan.Man. Utd '08:Stjóri: Sir Alex FergusonLeikmenn: Edwin van der Sar Gary Neville Rio Ferdinand Paul Scholes Ryan Giggs Nemanja Vidić Wayne Rooney Wes Brown Owen Hargreaves Ji Sung Park Mikaël Silvestre Louis Saha Darren FletcherÚrvalslið Michael Carrick:Stjóri: Harry RedknappLeikmenn: Steven Gerrard Frank Lampard Michael Owen John Terry Jamie Carragher Phil Neville Robbie Keane Míchel Salgado Shay Given Éric Abidal Damien Duff Gaizka Mendieta Eiður Smári Guðjohnsen
Enski boltinn Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira