Moyes fékk 3,8 milljóna sekt fyrir að hóta íþróttafréttakonu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júní 2017 13:07 David Moyes. Vísir/Getty
David Moyes, fyrrum knattspyrnustjóri Sunderland, hefur verið sektaður um 30 þúsund pund af enska knattspyrnusambandinu eftir að hafa hótað íþróttafréttakonu BBC barsmíðum í mars. Moyes var þá í viðtali hjá henni Vicki Sparks á BBC og var mjög pirraður þegar hún spurði það hvort að eigandinn Ellis Short hafi sett auka pressu á stjórann með því að mæta á svæðið. „Ég myndi passa mig. Þú gætir verið slegin, jafnvel þótt þú sért kona. Passaðu þig næst þegar þú kemur,“ sagði Moyes við Sparks eftir að viðtalinu lauk. Moyes bað Sparks seinna persónulega afsökunar og sagði sjá eftir öllu saman þegar hann hitti fjölmiðlamenn á blaðamannafundi. „Þetta gerðist í hita augnabliksins,“ sagði Moyes. „Ég er ekki svona maður. Ég gengst við þessum mistökum. Ég talaði við fréttakonuna sem samþykkti afsökunarbeiðni mína,“ sagði David Moyes á blaðamannfundinum 3. apríl síðastliðnum. Það fór vel á með Vicki Sparks og David Moyes þegar þau hittust aftur og hún sendi ekki inn formlega kvörtun. Það kom samt ekki í veg fyrir að Moyes fékk þunga sekt en 30 þúsund pund eru um 3,8 milljónir íslenskra króna. David Moyes hætti sem stjóri Sunderland í maí eftir að liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira