Harry Kane með augun á Gullboltanum en veit hvað þarf að breytast Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júní 2017 09:45 Harry Kane vill ekki bara Gullskóinn heldur líka Gullboltann. Vísir/Getty
Harry Kane, framherji Tottenham og enska landsliðsins, hefur fyrir löngu skapað sér nafn í hópi bestu framherja ensku úrvalsdeildinni þrátt fyrir ungan aldur en þessi 23 ára gamli strákur vill enn meira í framtíðinni. Harry Kane sagði frá framtíðardraumum sínum á blaðamannafundi fyrir leik Englendinga og Skota í undankeppni HM. Kane dreymir eins og marga aðra um að vinna Gullboltann sem besti knattspyrnumaður heims en viðurkennir að hann þurfi að fara að vinna titla ætli hann að komast á þann stall. „Hver vill ekki vinna Gullboltann? Það er án vafa eitthvað sem ég sækist eftir,“ sagði Harry Kane og bætti við: „Ef ég ætla mér að ná þangað þá þarf ég að fara að vinna stóru mótin bæði með félaginu mínu og landsliði. Ronaldo vann Evrópukeppnina og Meistaradeildina og Messi er í svipaðri stöðu,“ sagði Kane. BBC segir frá. Kane hefur verið markakóngur ensku úrvalsdeildarinnar tvö ár í röð og á báðum tímabilunum hefur Tottenham verið í titilbaráttunni án þess að vinna. Liðið er titlalaus á síðustu níu tímabilum en hefur hækkað sig í deildinni á þremur tímabilum í röð. „Til að ná að vinna Gullboltann þá er ekki nóg að standa sig vel sem einstaklingur heldur þurfa liðin þín líka að vinna titla. Vonandi er það eitthvað sem ég næ að gera með Tottenham,“ sagði Kane. Síðasti titill Tottenham var deildarbikarmeistaratitilinn 2008 en félagið hefur ekki unnið ensku deildina í 56 ár (1961) og ekki enska bikarinn í 26 ár (1991). Harry Kane hefur skorað yfir tuttugu mörk á síðustu þremur tímabilum og hækkað markaskor sitt á hverju tímabili í ensku úrvalsdeildinni frá því að skora 3 mörk tímabilið 2013-14, í það að skora 21 mark 2014-15, 25 mörk 2015-16 og loks 29 mörk í aðeins 30 leikjum á síðustu leiktíð.
Enski boltinn Mest lesið Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira