Þjónusta við leiði í kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma verður skert Jóhann K. Jóhannsson skrifar 5. júní 2017 19:00 Þjónusta við leiði í Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma verður skert í sumar. Vísir/Jóhann K. Jóhannsson
Þjónusta við leiði í kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma verður skert fáist ekki frekari fjárframlög frá hinu opinbera. Helmingi færri starfsmenn verða ráðnir til starfa í sumar miðað við árið tvö þúsund og átta. Í Fréttablaðinu á föstudag birtist tilkynning frá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastdæma þar sem boðuð er skert þjónusta í sumar en ástæðan eru skert fjárframlög frá hinu opinbera. Á undanförnum árum hafa á annað hundrað ungmenni hjálpað til við garðyrkjustörf í kirkjugörðunum yfir sumartímann. Þar hefur garðsláttur og umhirða verið stór þáttur. Ljóst er að skerða þarf þá þjónustu svo um munar. Forstjóri Kirkjugarðanna segir tilkynninguna ákall til stjórnvalda um hversu alvarlegt ástandið er. „Og annars vegar þá er það krafa starfsmanna Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma að almenningi sé ljós sú staðreynd að það eru ekki þeir sem eru að slugsa heldur eru það stjórnvöld sem að auka ekki framlagið eins og þörf er á,“ segir Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Árið 2005 var undirritað samkomulag á milli ríkisins og kirkjugarðaráðs um fjárveitingar til kirkjugarða en samkomulagið byggði á gjaldalíkani sem var tæki til að nálgast raunverulega þörf garðanna til lögbundins rekstur.Þórsteinn segir að unnið hafi verið eftir samkomulaginu fyrstu þrjú árin en eftir efnahagshrunið 2008 hafi annara veruleiki tekið við. 400 milljónir vantar til þess að gjaldalíkanið, sem unnið var eftir fyrir kirkjugarðana á öllu landinu virki rétt. Sú staðreynd að ekki verði hægt að ráða fleira fólk til starfa í sumar komi til með að bitna á umhirðu garðanna. „Þeir þjónustuþættir sem almenningur hefur haft, þeir falla niður. Við tökum ruslafötur úr görðunum til þess að létta á með þessum fáu starfsmönnum sem eru ráðnir. Árið 2008 réðum við hundrað og sextíu sumarstarfsmenn en í sumar eru þeir áttatíu," segir Þórsteinn. Þórsteinn segir fátt um svör varðandi frekara fjárframlag frá hinu opinbera. „Það liggja fyrir erindi sem ekki hefur verið svarað. Við höfum verið á fundum þar og svörin eru svona óbeinlínis þau að það verði ekki um neina leiðréttingar að ræða. Ekki á yfirstandandi ári. Ekki á næsta ári og ekki í sjónmáli á þessari fimm ára ríkisfjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar.
Mest lesið Mennirnir tveir fundnir Innlent Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Innlent Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Innlent Mættur í Samfylkinguna Innlent Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Innlent Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Erlent Hlaut varanlegan skaða vegna myglu en fær ekki krónu Innlent Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Innlent Fleiri fréttir Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Ekki hægt að aldursskipta börnum á Stuðlum í miðjum stormi „Skítastaða“ á Stuðlum, vongóðir nýliðar og búð þar sem allt er ókeypis „Það verður að láta reyna á þessar kærur“ Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Hlaut varanlegan skaða vegna myglu en fær ekki krónu Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Unglingar á ofsahraða reyndu að stinga lögregluna af Mennirnir tveir fundnir Hólmfríður ætlar í ritara VG Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Malbika bílastæðin í Reynisfjöru Fluttur með þyrlu eftir bílveltu á Snæfellsnesi Ríkisstjórnin sameini það versta frá bæði vinstri og hægri „Íslenska vegakerfið er líklega hættulegasti ferðamannastaður landsins“ Starfshópur skipaður vegna slysa hjá ferðamönnum Veitingastaður ber ekki ábyrgð á hnefahöggi starfsmanns Má ekki eyða myndböndum sem mátti ekki taka Laxalúsin sækir í sig veðrið fyrir vestan Grunur um að fiskar úr landeldi hafi komist í sjó Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Mættur í Samfylkinguna Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Einn af 103 ökumönnum reyndist yfir mörkum Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Sjá meira