Innlent

Lögreglan lýsir eftir Kára

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Lögreglan leitar Kára.
Lögreglan leitar Kára. Vísir/Eyþór
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Kára Siggeirssyni.

Kári er 28 ára og er 174 sentímetrar á hæð og þrekvaxinn. Hann var klæddur í grænan hermannajakka, dökkar buxur og svarta strigaskó þegar síðast sást til hans í Reykjavík, síðdegis á föstudag. Hann er með dökkt, stutt hár.

Kári hefur glímt við veikindi og því mikilvægt að hann finnist fljótt og óskar lögreglan eftir því að þeir sem hafi séð Kára eða viti hvar hann er að finna, hafi samband við lögreglu í síma 112.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×