Innlent

Hvarfakútum stolið af bílum á Suðurnesjum

Kostnaður við nýjan hvarfakút er um 200 þúsund krónur að því er segir í tilkynningu lögreglu.
Kostnaður við nýjan hvarfakút er um 200 þúsund krónur að því er segir í tilkynningu lögreglu. Vísir/Getty
Hvarfakútum hefur verið stolið undan sjö bílum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu vikum.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að allir bílarnir sem kútarnir voru sagaðir undan hafi staðið í Njarðvík – tveir hjá Heklu bílaumboði, einn hjá Nýsprautun og fjórir hjá KG bílum. Sé um mikið tjón að ræða fyrir þá bílaeigendur sem hafa orðið fyrir barðinu á þjófunum þar sem kostnaður við nýjan hvarfakút er um 200 þúsund krónur.

„Fyrri þjófnaðurinn átti sér stað um miðjan síðasta mánuð þegar hvarfakútar voru sagaðir undan þremur bifreiðum og sá síðari var tilkynntur til lögreglu nú í vikunni þegar kútar voru sagaðir undan fjórum til viðbótar.

Þeir sem búa yfir upplýsingum um þessi mál eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 4442200,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×