Þrjár leiðir til að draga úr áhættu vegna fjárfestingastarfsemi bankanna Höskuldur Kári Schram skrifar 13. júní 2017 18:45
Verulega hefur dregið úr fjárfestingastarfsemi viðskiptabankanna frá hruni samkvæmt nýrri skýrslu starfshóps fjármálaráðherra um málið. Ráðherra telur að skýrslan sýni að ekki sé nauðsynlegt aðskilja þessa starfsemi frá bönkunum til koma í veg fyrir meiriháttar áföll í framtíðinni. Fjallað er um kosti og galli við aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingabankastarfsemi í skýrslu starfshóps fjármálaráðherra sem var birt í morgun. Margir telja að nauðsynlegt að aðskilja þessa hluti til að draga úr kerfisáhættu innan bankakerfisins og var starfshópnum gert að kanna leiðir í þessu samhengi. „Fjárfestingastarfsemin í dag er mun minni en hún var fyrir hrun og það hafa komið fram sjónarmið erlendis um að það sé best að setja slíkri starfsemi skorður á meðan hún er lítil,“ segir Leifur Arnkell Skarphéðinsson formaður starfshópsins. Hópurinn leggur til þrjár leiðir verði skoðaðar. Í fyrsta lagi að byggt verði á þeim laga- og reglugerðabreytingum sem gerðar hafa verið á undanförnum árum. Í öðru í lagi að starfsemin verði aðskilin og í þriðja lagi að viðskiptabönkunum verði gert kleift að stunda fjárfestingastarfsemi upp að ákveðnu marki. „Ég held að allir séu sammála um það meginmarkmiðið að minnka áhættuna í þessum rekstri og þá fyrir kerfið í heild. Það sem þessi skýrsla dregur vel í ljós er að það hefur margt verið gert nú þegar til þess að minnka þessa áhættu,“ segir Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra. Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna hefur kallað eftir algjörum aðskilnaði en segist tilbúin að skoða aðra kosti. „Sem er annað hvort að setja ákveðið hámark á fjárfestingabankastarfsemi innan almennrar bankastarfsemi eða þá skoða að hafa þetta fullkomlega aðskilið eins og ég hef lagt til. Ég er mjög opin fyrir því að skoða hina leiðina en ég tel mikilvægt að einhvers konar aðgreiningu verði komið á,“ segir Katrín Jakobsdóttir formaður VG.
Mest lesið Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Mættur í Samfylkinguna Innlent Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Innlent Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Erlent Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Innlent Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Erlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Lögreglan þarf að ná tali af tveimur mönnum Innlent Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Erlent Fleiri fréttir Unglingar á ofsahraða reyndu að stinga lögregluna af Lögreglan þarf að ná tali af tveimur mönnum Hólmfríður ætlar í ritara VG Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Malbika bílastæðin í Reynisfjöru Fluttur með þyrlu eftir bílveltu á Snæfellsnesi Ríkisstjórnin sameini það versta frá bæði vinstri og hægri „Íslenska vegakerfið er líklega hættulegasti ferðamannastaður landsins“ Starfshópur skipaður vegna slysa hjá ferðamönnum Veitingastaður ber ekki ábyrgð á hnefahöggi starfsmanns Má ekki eyða myndböndum sem mátti ekki taka Laxalúsin sækir í sig veðrið fyrir vestan Grunur um að fiskar úr landeldi hafi komist í sjó Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Mættur í Samfylkinguna Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Einn af 103 ökumönnum reyndist yfir mörkum Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Nemandinn sem stakk Ingunni áfrýjar dómi Sjá meira