Lehmann snýr aftur á Emirates Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 4. júlí 2017 20:00 Jens Lehmann er kominn aftur til Arsenal. Mynd/Nordic Photos/Getty
Þjóðverjinn Jens Lehmann mun snúa aftur til Arsenal ef marka má heimildir breska blaðsins Guardian. Lehmann gerði garðinn frægann sem markmaður hjá félaginu rétt eftir aldamótin og var hann hluti af hinu ósigrandi liði Arsenal tímabilið 2003-04. Hann yfirgaf félagið árið 2008 eftir fimm ára dvöl, en snéri aftur í þrjá mánuði í mars 2011. Nú mun Lehmann vera á leiðinni sem viðbót í þjálfarateymi Arsene Wenger. Gerry Peyton er núverandi markmannsþjálfari Arsenal og mun Lehmann koma inn sem almennur þjálfari aðalliðsins. Markmaðurinn knái kom til liðsins frá þýska stórveldinu Borussia Dortmund árið 2003 og vann Englandsmeistartitilinn strax á sínu fyrsta tímabili. Það var einmitt í síðasta skipti sem Arsenal hampar stóra titlinum í Englandi. Lehmann var einnig hluti af liðinu sem vann bikarkeppnina 2005 þar sem hann varði meðal annars markið í vítaspyrnukeppni gegn Manchester United. Hann stóð í markinu hluta af úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu 2006, en þurfti að fara af velli eftir að hafa fengið rautt spjald frá dómara leiksins. Þessi 47 ára markmaður er stærsta viðbótin í þjálfarateymi Arsenal í sumar, en Wenger hefur verið að stokka upp í aðstoðarliði sínu. Darren Burgess, sem var í aðstoðarliði Þjóðverja þegar þeir unnu heimsmeistaratitilinn 2006, er einnig mættur á Emirates og enn er óráðin staða yfirmanns akademíunnar.
Enski boltinn Tengdar fréttir Wenger staðfestir að Lehmann verði með Arsenal út tímabilið Arsène Wenger, stjóri Arsenal, hefur staðfest það að félagið sé búið að gera samning við þýska markvörðinn Jens Lehmann út tímabilið. Lehmann mun verða varamarkvörður Manuel Almunia þar sem að allir aðrir markverðir liðsins eru frá vegna meiðsla. 17. mars 2011 17:00 Wenger: Hefðum getað unnið Meistaradeildina 2006 ef myndbandstæknin hefði verið komin Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, fagnar því að farið sé að nota myndbandstækni við dómgæslu. Hann segir að Arsenal hefði getað unnið Meistaradeild Evrópu fyrir 11 árum, ef myndbandstæknin hefði verið komin til sögunnar þá. 20. júní 2017 20:30 Tíu gamlingjar sem hafa tekið ensku úrvalsdeildina með trompi Zlatan Ibrahimovic, framherji Manchester United, hefur verið sjóðheitur að undanförnu og skorað 10 mörk í síðustu níu leikjum sínum. 22. desember 2016 23:15 Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Birkir á leið til Vals á nýjan leik Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Stefán fær Arsenal í heimsókn Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Heimir „hæstánægður með FH-liðið“ eftir 3-0 tap „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Barcelona jók forskot sitt með herkjum Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm „Draumur að spila fyrir uppeldisfélagið“ Sveindís Jane og Sædís Rún í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Sjá meira
Wenger staðfestir að Lehmann verði með Arsenal út tímabilið Arsène Wenger, stjóri Arsenal, hefur staðfest það að félagið sé búið að gera samning við þýska markvörðinn Jens Lehmann út tímabilið. Lehmann mun verða varamarkvörður Manuel Almunia þar sem að allir aðrir markverðir liðsins eru frá vegna meiðsla. 17. mars 2011 17:00
Wenger: Hefðum getað unnið Meistaradeildina 2006 ef myndbandstæknin hefði verið komin Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, fagnar því að farið sé að nota myndbandstækni við dómgæslu. Hann segir að Arsenal hefði getað unnið Meistaradeild Evrópu fyrir 11 árum, ef myndbandstæknin hefði verið komin til sögunnar þá. 20. júní 2017 20:30
Tíu gamlingjar sem hafa tekið ensku úrvalsdeildina með trompi Zlatan Ibrahimovic, framherji Manchester United, hefur verið sjóðheitur að undanförnu og skorað 10 mörk í síðustu níu leikjum sínum. 22. desember 2016 23:15