Manchester City lék sér að Real Madrid í Los Angeles Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. júlí 2017 09:00 Táningurinn Brahim Diaz fagnar markinu sínu. Vísir/Getty
Manchester City er greinilega komið í gírinn fyrir leik sinn á Laugardalsvöllinn í næstu viku en liðsmenn Pep Guardiola fóru illa með Evrópumeistara Real Madrid í æfingaleik í Los Angeles í Bandaríkjunum í nótt. 93 þúsund manns sáu þá Manchester City vinna sinn fyrsta sigur á undirbúningstímabilinu en leikurinn var hluti af alþjóðlega æfingamótinu International Champions Cup. City vann Real Madrid 4-1. Mörk Manchester City skoruðu þeir Nicolas Otamendi, Raheem Sterling, John Stones og hinn sautján ára gamli Brahim Diaz. Brasilíumaðurinn Danilo spilaði sinn fyrsta leik með Manchester City en nýjasti meðlimurinn, Benjamin Mendy, verður hinsvegar frá í tvær til þrjár vikur. City keypti Mendy á 52 milljónir punda frá Mónakó á dögunum en knattspyrnustjórinn Pep Guardiola vill ekki taka neina áhættu með hann. Belginn Kevin de Bruyne lagði upp þrjú af fjórum mörkum Manchester City í leiknum. Hann lagði upp mörkin fyrir Sterling, Stones og Diaz en ungi strákurinn skoraði mjög laglegt mark. Staðan var markalaus í hálfleik en Manchester City skoraði mörkin sín frá 52. til 81. mínútu. Oscar Rodriguez minnkaði muninn fyrir Real Madrid undir lokin. „Ef við spilum með svona ákefð þá getum við keppt við alla. Það er okkar draumur,“ sagði Pep Guardiola eftir leikinn. Guardiola staðfesti eftir leikinn að Spánverjinn David Silva verði klár fyrir fyrsta leik tímabilsins sem verður á móti Brighton 12. ágúst næstkomandi. Áður en að honum kemur munu leikmenn Manchester City spila við Tottenham í Nashville á laugardaginn og stoppa svo á Íslandi og spila við West Ham á Laugardalsvellinum. Super Match fer fram á þjóðarleikvanginum föstudaginn 4. ágúst.
Enski boltinn Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira