Innlent

Fólksbifreið endaði í fjörunni við Akureyri

Ingvar Þór Björnsson skrifar
Virðist ökumaðurinn hafa verið að koma innan úr Eyjafirði.
Virðist ökumaðurinn hafa verið að koma innan úr Eyjafirði. VÍSIR/SKA
Fólksbifreið endaði út í fjöru rétt fyrir utan Akureyrarbæ í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri er nú leitað að ökumanni bílsins en talið er að bifreiðin sé bílaleigubíll.

Virðist ökumaðurinn hafa verið að koma innan úr Eyjafirði. Keyrði hann niður skilti og endaði svo út í sjó.

Ekki gekk að ná í eiganda bílsins í morgun.

VÍSIR/SKH
Vísir/SKH



Fleiri fréttir

Sjá meira


×