Innlent

Ekið á gangandi vegfaranda við Bústaðakirkju

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Bústaðakirkja stendur við Bústaðaveg í Reykjavík.
Bústaðakirkja stendur við Bústaðaveg í Reykjavík. Vísir/Ernir
Ekið var á gangandi vegfarenda við Bústaðakirkju skömmu fyrir klukkan fjögur.

Sjúkrabíll er nú á staðnum að sinna manninum sem er slasaður á fæti. Hann hafði verið að ganga yfir Bústaðaveg þegar bíllinn hafnaði á honum.

Að sögn slökkviliðs er þung umferð á svæðinu eins og alla jafna á þessum tíma.

Bílnum hafi því ekki verið ekið á manninn á mikilli ferð og eru meiðsli hans því ekki talin alvarleg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×