Enski boltinn

Sælir vinningshafar í treyjuleik Vísis

Ritstjórn skrifar
Henning Árni, til vinstri, og Sveinn.
Henning Árni, til vinstri, og Sveinn. Vísir/Stefán
Henning Árni Jóhannsson og Sveinn Jónsson voru þeir heppnu sem voru dregnir út í leik Vísis þar sem áritaðar keppnistreyjur West Ham og Manchester City voru til vinnings.

Þessi lið munu einmitt etja kappi í The Super Match á Laugardalsvelli klukkan 14.00 í dag. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Fjöldi lesenda Vísis tóku þátt í leiknum en þeir Henning Árni og Sveinn voru alsælir með vinninginn sinn, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×