Nýjasta tískan hjá fótboltamönnum er að kaupa bandarísk fótboltafélög Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. ágúst 2017 15:00 Didier Drogba er bæði leikmaður og eignandi síns félags. Vísir/Getty
Margir frægir fótboltamenn hafa komið til Bandaríkjanna við lok ferilsins til að ná sér í einn til tvo góða samninga áður en skórnir fara upp á hillu. MLS-liðin hafa aukið sýnileika sinn með því að semja við stór nöfn og smá saman hefur vægi og virðing bandarísku deildarinnar aukist í alþjóðalega fótboltaumhverfinu. Nú koma leikmenn hinsvegar ekki aðeins til Bandaríkjanna til að næla sér í góðan samning hjá MLS-liðum því nýjasta tískan hjá þeim er að koma og kaupa sér fótboltafélög. Fótboltamennirnir hafa vissulega ekki efni á því að kaupa sér félag í MLS-deildinni enda stofnkostnaðurinn þar gríðarlega hár og tímafrekt ferli eins og sjá má á tilraun David Beckham í Miami. Þeir fara hinsvegar aðra leið eða með því að kaupa bandarísk neðri deilda lið. Lið sem spila í North American Soccer League og í United Soccer League eru nú nokkur með fræga fótboltamenn í eigandahópi sínum. Didier Drogba er þannig spilandi eigandi hjá liði Phoenix Rising FC, Paolo Maldini var einn af stofnendum Miami FC árið 2015 og þeir Demba Ba, Eden Hazard, Yohan Cabaye og Moussa Sow stofnuðu nýverið saman fótboltafélag í San Diego sem mun byrja að spila árið 2018. Það er ekki aðeins ljúft fyrir þessa kappa að búa í Phoenix, Miami og San Diego eftir að fótboltaferlinum lýkur heldur sjá þessi félög gróðavon í því að selja leikmenn upp í MLS-deildina. Á þessum þremur stöðum er hefð fyrir uppkomu sterkra leikmanna og þar eru því mikil tækifæri að búa til framtíðarstjörnur. Það er líka draumur margra fótboltamanna að eiga sitt félög eftir að hafa spilað fyrir margskonar og mislynda eigendur allan sinn feril. Svo eru það draumóramenn eins og Didier Drogba en hann ætlar sér að koma Phoenix Rising FC liðinu upp í MLS-deildina en um leið og vinsældir fótboltans aukast í Bandaríkjunum þykir mjög líklegt að MLS-deildin taki inn fleiri lið á næstu árum. Guardian fjallaði ítarlegra um þessa þróun og má lesa þá umfjöllun hér.
Fótbolti Mest lesið Sjáðu fyrstu mörk Orra Steins í treyju Real Sociedad Fótbolti Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó Íslenski boltinn Valsmenn neituðu að veita viðtöl Körfubolti Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Enski boltinn Lélegasta lið sögunnar: „Augljóslega er þetta ömurlegt“ Sport Í beinni: KR - Fram | Rúnar snýr aftur á Meistaravelli Íslenski boltinn „Ábyrgðin er mín“ Fótbolti Uppgjörið: FH - Breiðablik 0-1 | Kristinn kom Blikum á toppinn með marki úr hornspyrnu Íslenski boltinn Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Fótbolti Leik lokið: Vestri - HK 2-1 | Vestri upp úr fallsæti á kostnað HK Íslenski boltinn Fleiri fréttir Leik lokið: Vestri - HK 2-1 | Vestri upp úr fallsæti á kostnað HK Uppgjörið: FH - Breiðablik 0-1 | Kristinn kom Blikum á toppinn með marki úr hornspyrnu Mikael Egill byrjaði þegar Rómverjar komu til baka Delap bjargaði stigi fyrir nýliðina Í beinni: Man. Utd. - Tottenham | Tvö lið í snúinni stöðu Emilía Kiær skoraði og Glódís Perla sá rautt í öruggum sigri Í beinni: Þróttur - Þór/KA | Þróttarar í leit að fyrsta sigrinum Í beinni: KR - Fram | Rúnar snýr aftur á Meistaravelli Vilja framlengja við nærri fertugan Ronaldo „Sannfærður um að við séum að einblína á röngu hlutina“ Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Sjáðu fyrstu mörk Orra Steins í treyju Real Sociedad Vonbrigða tímabil Vals getur skorið úr um hvar titillinn endar Nökkvi Þeyr kom að marki og Messi bjargaði stigi „Ábyrgðin er mín“ Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó KSÍ sækir um í Afrekssjóð ÍSÍ fyrir næsta ár Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Allt í molum hjá Barcelona í fyrsta tapinu Sara lagði upp í fyrsta leik í Sádi-Arabíu Stöðvuðu Bayern sem missti Kane meiddan af velli Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Jóhann á sigurbraut í Sádi-Arabíu KR upp um deild og Haukar tóku við bikarnum „Þetta er bara besta móment lífs míns“ Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn „Ég bara hágrét í leikslok“ „Þetta endar eins og þetta á að enda“ Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Sjá meira
Uppgjörið: FH - Breiðablik 0-1 | Kristinn kom Blikum á toppinn með marki úr hornspyrnu Íslenski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn
Uppgjörið: FH - Breiðablik 0-1 | Kristinn kom Blikum á toppinn með marki úr hornspyrnu Íslenski boltinn