Innlent

Ekið á sjö ára dreng á reiðhjóli

Drengurinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild og eru meiðsl hans talin minniháttar.
Drengurinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild og eru meiðsl hans talin minniháttar. vísir/eyþór
Klukkan ellefu í morgun barst lögreglu á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um umferðarslys í Mosfellsbæ.

Ekið hafði verið á sjö ára gamlan dreng á reiðhjóli sem var að fara yfir gangbraut.

Drengurinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild og eru meiðsl hans talin minniháttar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×