Innlent

Sautjánda öldin grafin upp á Arnarstapa

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Kevin Martin við fornleifauppgröftinn á Arnarstapa. Í dag verður mokað yfir minjarnar – í bili.
Kevin Martin við fornleifauppgröftinn á Arnarstapa. Í dag verður mokað yfir minjarnar – í bili. vísir/vilhelm
„Þetta er fyrsti fornleifauppgröfturinn á Íslandi sem beinist sérstaklega að minjum verslunar á sautjándu og átjándu öldinni,“ segir Kevin Martin sem stýrir uppgreftri á húsi á Arnarstapa sem ljóst þykir að sé frá því tímabili.

Uppgröfturinn er hluti af doktorsverkefni Kevins við Háskóla Íslands. Það sama gildir um Jakob Orra Jónsson sem tekur þátt í verkinu með Kevin ásamt þeim Huldu Björk Guðmundsdóttur og Gylfa Birni Helgasyni. Dr. Gavin Lucas, prófessor við Háskóla Íslands, leiðir verkefnið sem snýr að verslun á einokunartímabilinu og áhrifum verslunarinnar á íslenskt samfélag.

Kevin segir uppgröftinn hafa gengið afar vel á mjög stuttum tíma. Hann hófst fyrir aðeins átta dögum og í dag er verið að ganga frá. Í ljós hafi komið veggir og gólf í húsi sem örugglega sé miklu stærra en svæðið sem grafið var upp að þessu sinni. Ýmsar minjar, til dæmis brot úr leirofni og skreyttum diskum, brot úr hollenskum reykjarpípum sem flestar voru smíðaðar á 17. öld, og glergripir, til dæmis vínglös, bendi til þess að húsið tengist velefnuðu fólki á þeirra tíma vísu. Það gæti hafa verið amtmaður eða kaupmaðurinn á þessum hluta Snæfellsnes.

„Við áttum allt eins von á að staðurinn væri allur í graut eins og títt er um slíkar minjar en hann er algerlega óhreyfður og óspilltur aðeins um hálfan metra undir yfirborðinu,“ segir Kevin.

Að sögn Kevins liggur nú fyrir að hylja svæðið aftur til að vernda það þar til næstu skref verða ákveðin. Uppgröfturinn hafi verið unninn með styrk frá Rannís en ekkert liggi fyrir um framhaldið.

„Þetta er mjög spennandi og það væri eflaust eftir miklu að slægjast að halda áfram en til þess þarf fjármagn. Við munum skoða það síðar en eins og staðan er núna höfum við nægan efnivið til að ljúka við doktorsverkefnið. Það tekur því við hjá okkur núna í framhaldinu að vinna úr því sem þegar er komið í ljós,“ segir Kevin Martin. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×