Innlent

Lokað fyrir heita vatnið í kringum Fossvog á morgun

Atli Ísleifsson skrifar
Lokað verður fyrir heita vatnið í Fossvogi og Ásgarði í Reykjavík og í Lundi í Kópavogi.
Lokað verður fyrir heita vatnið í Fossvogi og Ásgarði í Reykjavík og í Lundi í Kópavogi. Veitur
Lokað verður fyrir heita vatnið á stóru svæði á morgun þegar Veitur munu skipta út aðalæð hitaveitu í Fossvogi.

Í tilkynningu frá Veitum segir að af þeim sökum þurfi að loka fyrir heita vatnið í Fossvogi og Ásgarði í Reykjavík og í Lundi í Kópavogi. Mun lokunin standa yfir frá sex í fyrramálið til klukkan 20 annað kvöld.

„Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Í kuldatíð er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni.

Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa. Hægt verður að fylgjast með framgangi framkvæmdanna á heimasíðu Veitna,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×