Stutt gaman hjá Aroni Einari sem fór meiddur af velli í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. október 2017 20:40 Aron Einar Gunnarsson. Vísir/Getty
Íslendingaliðin Cardiff City og Bristol City náðu ekki að fagna sigri í ensku b-deildinni í fótbolta í kvöld en eru samt bæði í þremur efstu sætum deildarinnar. Íslenski landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson kom seint inná en fór snemma af velli því hann meiddist í kvöld. Neil Warnock, knattspyrnustjóri Cardiff City, var ósáttur við að íslenski landsliðsfyrirliðinn tæki þátt í landsleikjunum mikilvægu þar sem Ísland tryggði sig inn á HM í Rússlandi. Aron Einar byrjaði á bekknum í kvöld en kom inná sem varamaður á 68. mínútu en þá var Cardiff City búið að vera undir frá 19. mínútu leiksins. Aron Einar meiddist á ökkla á 84. mínútu leiksins en harkaði af sér og fór aftur inn á völlinn. Hann náði samt ekki að klára leikinn og Cardiff lék manni færri í uppbótartímanum. Steve Cotterill stýrði liði Birmingham í fyrsta sinn og byrjaði á því að vinna topplið deildarinnar en liðið komst upp úr fallsæti með þessum sigri. Sigurmarkið skoraði Che Adams á 19. mínútu. Þrátt fyrir tapið er Cardiff City áfram í efsta sæti deildarinnar en gæti misst það til Úlfanna sem eiga leik inni um helgina. Cardiff hafði aftur á móti náði fjögurra stiga forystu með sigri. Hörður Björgvin Magnússon er áfram út í kuldanum hjá Lee Johnson, knattspyrnustjóra Bristol City, en Hörður Björgvin sat allan tímann á bekknum þegar Bristol City gerði markalaust jafntefli á heimavelli á móti Burton en stigið kom liðinu samt upp í þriðja sætið.
Enski boltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Uppgjör og viðtöl: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Handbolti Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Fleiri fréttir Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Sjá meira