Liverpool undir stjórn Klopp er lang besta liðið í stórleikjunum Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. október 2017 08:00 Jürgen Klopp er góður í stórleikjunum. vísir/getty
Enska úrvalsdeildin fer aftur af stað um helgina eftir viðburðaríka landsleikjaviku en byrjað er með látum því í hádeginu á laugardaginn mætast Liverpool og Manchester United á Anfield. Sé bara horft til árangurs liðanna í síðustu leikjum, sem er vitaskuld stranglega bannað þegar kemur að þessum hatramma slag, er auðvelt að spá Manchester United sigri á Anfield. Lærisveinar José Mourinho eru búnir að vinna níu af tíu leikjum sínum á tímabilinu og gera eitt jafntefli. Liðið er búið að skora fjögur mörk í fjórum af síðustu fimm leikjum á meðan Liverpool er aðeins með einn sigur í síðustu sjö leikjum í öllum keppnum. Liverpool-menn þurfa þó ekki að örvænta því þegar kemur að stórleikjunum er ekkert lið betra en Rauði herinn eftir að Jürgen Klopp tók við. Liverpool, undir stjórn Þjóðverjans, er með lang besta árangurinn í sex liða stórliðadeild ensku úrvalsdeildarinnar. Síðan að Klopp tók við hefur hann í 20 leikjum á móti Manchester-liðunum tveimur, Chelsea, Arsenal og Tottenham aðeins tapað tvisvar sinnum en unnið níu leiki, gert níu jafntefli og safnað 36 stigum. Næsta lið í litlu stórliðadeildinni er Chelsea með 28 stig í 21 leik. Ekkert lið hefur skorað meira en Liverpool í innbyrðis viðureignum þessara liða eða 35 mörk og það sem meira er hefur það ekki fengið á sig flest mörk heldur aðeins 22 í 20 leikjum.Ekki slæmur árangur.mynd/sky sports
Enski boltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Handbolti Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Fleiri fréttir Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Sjá meira