Sir Alex handsalaði samning við Tottenham en gekk á bak orða sinna Tómas Þór Þórðarson skrifar 11. október 2017 12:00 Sir Alex Ferguson lyfti þessum bikar 13 sinnum sem stjóri Manchester United. vísir/getty
Skoski knattspyrnustjórinn Sir Alex Ferguson gerði Manchester United að stærsta félagi Englands og sigursælasta liði ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi en tveimur árum áður en hann tók við United var hann búinn að samþykkja að taka við Tottenham. Þetta kemur fram í viðtali við Irving Scholar, fyrrverandi stjórnarformanns Tottenham, í The Sun en hann vildi fá Ferguson til starfa þegar Keith Burkinshaw sagði upp störfum árið 1984. Ferguson var búinn að ná mögnuðum árangri með Aberdeen í Skotlandi á þessum tíma. Hann var búinn að vinna skosku deildina tvisvar sinnum, bikarinn í þrígang og leggja Real Madrid að velli í úrslitaleik Evrópukeppni bikarhafa árið 1983. „Sannleikurinn er sá að ég var búinn að vera að tala við og reyna að semja við Sir Alex. Við ræddum lengi saman. Ég sagði honum að ég væri af gamla skólanum þar sem handaband þýðir að málið er komið í höfn. Það megi ekki undir nokkrum kringumstæðum ganga á bak orða sinna sé búið að handsala eitthvað,“ segir Scholar. Sir Alex hitti Scholar og annan stjórnarmann Tottenham rétt fyrir utan flugvöll í París þar sem Skotinn tók í höndina á stjórnarformanninum. Scholar var þá alveg klár á því að samningar væru í höfn. Ferguson gekk á bak orða sinna og tók ekki við Tottenham. Þegar hann kom í enska boltann tveimur árum síðar tók hann við Manchester United og náði þar ótrúlegum árangri eins og allir vita. „Hann sagði mér aldrei hvað gerðist. Ég hef mínar tilgátur en þetta skiptir ekki máli lengur. Ég var vonsvikinn. Hann tók tvö ár hjá Aberdeen til viðbótar,“ segir Irving Scholar. Sir Alex Ferguson átti eftir að vinna skosku deildina einu sinni til viðbótar, bikarinn einu sinni og deildabikarinn sömuleiðis einu sinni með Aberdeen áður en hann tók við Manchester United.
Enski boltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Handbolti Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Fleiri fréttir Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Sjá meira