Brighton og Southampton skildu jöfn

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Hart barist
Hart barist vísir/getty
Fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni lauk með 1-1 jafntefli þegar nýliðar Brighton fengu Southampton í heimsókn.

Gestirnir fengu draumabyrjun því Steven Davis kom Southampton yfir á sjöundu mínútu þegar hann fylgdi á eftir aukaspyrnu James Ward-Prowse sem hafnaði í tréverkinu. Staðan í leikhléi 0-1 fyrir Southampton.

Á sjöundu mínútu síðari hálfleiks jafnaði Glenn Murray metin fyrir heimamenn eftir undirbúning Pascal Gross og þar við sat.

Einu stigi munar á þessum liðum en Southampton situr í níunda sæti á meðan nýliðar Brighton eru í því ellefta.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira