Fótbolti

Markaveisla hjá PSG

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
PSG lítur vel út.
PSG lítur vel út. vísir/getty
Paris Saint Germain valtaði yfir Angers í frönsku Ligue 1 í dag.

Kylian Mbappe byrjaði markaveisluna strax á fimmtu mínútu leiksins. Julian Draxler og Edinson Cavani bættu við sínu markinu hvor fyrir leikhlé, staðan 0-3 í hálfleik.

Cavani og Draxler voru svo aftur á ferðinni í seinni hálfleik þegar sá síðarnefndi lagði upp fjórða mark PSG og annað mark Úrúgvæans á 60. mínútu.

Mbappe innsiglaði svo 0-5 sigur PSG á 84. mínútu.

Brasilíska stórstjarnan Neymar var ekki með PSG í leiknum vegna meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×