Fótbolti

Kamerún frumsýnir „ógnvekjandi“ búning | Myndir

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vincent Aboubakar og félagar í kamerúnska landsliðinu eru komnir í nýja búninga.
Vincent Aboubakar og félagar í kamerúnska landsliðinu eru komnir í nýja búninga. vísir/getty
Afríkumeistarar Kamerún hafa frumsýnt nýjan keppnisbúning sem er í sérstakari kantinum.

Græni liturinn er að venju allsráðandi í kamerúnska búningnum sem Puma framleiðir.

Framan á þessum nýja búningi er svo mynd af öskrandi ljóni og það er spurning hvort það skjóti andstæðingum Kamerún skelk í bringu.

Kamerún mun þó ekki spila í þessum nýja búningi á HM 2018 því kamerúnska liðið á ekki lengur möguleika á að komast til Rússlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×