Liverpool fékk ekki á sig skot á markið Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 18. nóvember 2017 17:00 Philippe Coutinho, leikmaður Liverpool. vísir/getty Liverpool átti ekki í vandræðum með Southampton í tólftu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Glæsimark Mohamed Salah kom heimamönnum yfir á 31. mínútu og Egyptinn var aftur á ferðinni tíu mínútum seinna. Phillipe Coutinho bætti svo þriðja markinu við og gerði út um leikinn á 68. mínútu. Southampton átti ekki skot á markið í leiknum og voru yfirburðir Liverpool algjörir. Staða Liverpool í deildinni breytist þó ekki, þeir eru enn í fimmta sætinu, en komnir með 22 stig. Southampton er í 13. sæti með þrettán stig. Enski boltinn