Enski boltinn

Sjáðu stórbrotið mark Gylfa

Gylfi fagnar marki sínu í gær.
Gylfi fagnar marki sínu í gær. Vísir/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði glæsilegt mark í 4-1 tapi Everton gegn Southampton í gær. Þetta var hans fyrsta í ensku úrvalsdeildinni fyrir Everton sem tapaði enn einum leiknum og er í miklu basli.

Mark Gylfa var því lítið annað en sárabótarmark en það var engu að síður stórbrotið, eins og sjá má í spilaranum hér fyrir neðan.

Arsenal og Manchester City unnu einnig sigra í sínum leikjum. Fyrrnefnda liðið vann sigur á Burnley, 1-0, þar sem Jóhann Berg Guðmundsson átti skot í stöng.

Manchester City er með átta stiga forystu á toppi deildarinnar og hefur enn ekki tapað leik. Everton er í sextánda sætinu með tólf stig, tveimur stigum frá fallsæti.

Southampton - Everton 4-1
Burnley - Arsenal 0-1
Huddersfield - Manchester City 1-2
Saves of the Weekend
Goals of the Weekend
Player of the Round
Sunday Roundup
Weekend Roundup

Tengdar fréttir

Draumamark Gylfa í miðri martröð Everton

Gylfi Þór Sigurðsson skoraði glæsilegt mark fyri Everton gegn Southampton í gær. Það dugði skammt því að stjóralaust lið Everton tapaði 4-1 og er í vondum málum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×