Tottenham tókst ekki að leggja stjóralaust lið WBA að velli Arnar Geir Halldórsson skrifar 25. nóvember 2017 17:00 Harry Kane skoraði eitt en það dugði ekki til sigurs vísir/getty Tottenham lenti í kröppum dansi þegar þeir fengu stjóralaust lið West Bromwich Albion í heimsókn á Wembley í dag. Gary Megson stýrir WBA á meðan leit að eftirmanni Tony Pulis stendur yfir og hann sá Jose Salomon Rondon koma sínu liði yfir snemma leiks. Markahrókurinn Harry Kane jafnaði metin fyrir Spurs á 74. mínútu eftir undirbúning Dele Alli. Fleiri urðu mörkin hinsvegar ekki og á Tottenham því á hættu að missa Liverpool upp fyrir sig í töflunni og sömuleiðis eiga Burnley og Arsenal möguleika á því að komast upp fyrir Tottenham en þau mætast á morgun. Enski boltinn