Adams: Arsenal vinnur ekki deildina undir stjórn Wenger Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. desember 2017 13:30 Arsene Wenger. vísir/getty
Tony Adams, fyrrverandi miðvörður og fyrirliði Arsenal, telur að liðið geti ekki orðið meistari undir stjórn Arsene Wenger en það kæmi honum ekkert á óvart ef Frakkinn framlengir samningi sinn við félagið. Arsenal er sama og úr leik í baráttunni um enska meistaratitilinn eftir fjórtán umferðir í deildinni en liðið er fimmtán stigum á eftir Manchester City eftir 3-1 tap á heimavelli gegn Manchester United á sunnudaginn. Wenger vann deildina þrsivar sinnum á fyrstu átta árum sínum í Lundúnum en fjórtán ár eru síðan hann vann hana síðast. Adams var gestur í þættinum Goals on Sunday á Sky Sports í gær þar sem hann var spurður hvort Arsenal gæti unnið deildina undir stjórn Wenger. „Hann er samningsbundinn í 18 mánuði til viðbótar þannig að þú ert að spyrja mig hvort þessi leikmannahópur geti orðið meistari. Það getur hann ekki. Það er nokkuð augljóst,“ sagði Adams. „Hversu lengi getur Wenger haldið áfram? Hann er 67 ára gamall og er búinn að láta hafa eftir að sér að ef hann hættir núna er hann í raun og veru að deyja. Ég sé hann því ekki hætta því hans bíður ekkert utan fótboltans. Ég sé hann alveg fyrir mér framlengja samninginn við Arsenal,“ sagði Tony Adams.
Enski boltinn Mest lesið Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira